Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Page 63
Vestræn dhersla
Titill greinarinnar felur í sér alþjóðlega vídd. Þar er spurt um hlutverk og
áskoranir trúarbragða og trúarstofnana almennt. Nú á dögum eru vart til
alþjóðlegri fyrirbæri en trúarbrögð, að minnsta kosti þegar hefðbundin
heimstrúarbrögð eiga í hlut.3 Tákn þeirra eru nálæg á nær hverju götuhorni
sé vel að gáð líkt og þegar McDonald’s eða Coca-Cola eiga í hlut. Með
tilkomu heimsþorpsins eru hin hefðbundnu trúarbrögð myndrænt séð í
víxlverkandi samskiptum á götum þorpsins. Þessi víxlverkun skapar bæði
bráðan vanda og óendanlega möguleika í bráð og lengd. Hvort verður ofan
á, hættan eða möguleikarnir, fer eftir því hvernig trúarbrögðin bregðast við
návíginu sín á milli og ögrunum samfélagsins. Það geta þau t.d. gert með
því sem kalla má skerpingu, innhverfmgu eða aðlögun en það eru greiningar-
hugtök sem beitt verður síðar í greininni og skilgreind þar.
Viðurkennt skal að titill greinarinnar er misvísandi ef hann er tekinn svo
að hér verði alþjóðlegt, samanburðar-trúarbragðafræðilegt sjónarhorn lagt
til grundvallar þannig að öllum helstu trúarbrögðum og trúarstofnunum
heims verði gerð skil. Sjónarhornið verður þrengra, vestrænna og „kristnara“
þar sem gengið verður út frá vestrænum og í verulegum mæli íslenskum
aðstæðum og reynt að alhæfa nokkuð út frá þeim. Vegna þessa þrönga
sjónarhorns skal ítrekað að í titlinum er ekki aðeins vísað til trúarbragða
heldur einnig trúarstofnana. Stofnunarvæðing trúar er fremur einkenni á
vestrænum en austrænum trúarbrögðum og kristin kirkja er án efa háþró-
uðust allra trúarstofnana jafnvel þótt um staðbundnar kirkjur mótmælenda
sé að ræða. Hvað þá ef hin alþjóðlega, stigveldislega uppbyggða rómversk-
kaþólska kirkja er tekin með í myndina? Að þessu leyti til felst vestræn
slagsíða í heiti og þar með viðfangsefni greinarinnar.
í titlinum felst einnig ákveðin kreppuhugsun. í spurningunni um hlut-
verk og áskoranir felst vísun til krísu vestrænnar kristni og vestrænna
trúarstofnana (kirkna). Þær virðast ekki aðeins óvissar um stöðu sína
heldur einnig um hlutverk sitt og sjálfsmynd og þar af leiðandi óöruggar
í viðbrögðum sínum við umhverfmu. Aftur á móti þarf ekki að leita langt
til að finna trúarstofnanir eða kirkjur sem er ekki eiginlegt að spyrja um
hlutverk sitt í sama mæli. Það nægir að fara yfir í hefðbundnari greinar
3 Vissulega er kristnin þau trúarbrögð sem mesta áherslu hafa lagt á boðun og útbreiðslu (mission).
Staða boðunar í kristninni kemur m.a. fram í staðsetningu svokallaðrar kristniboðsskipunar í
Matteusar- og Markúsarguðspjalli en þar er hún lögð í munn Kristi upp risnum og myndar lokaorð
Matteusarguðspjalls. Matt 28.18-28.19. Sjá og Mrk 16.15.
61