Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Side 112

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Side 112
Helgi gat ekki tekið undir gleði margra guðspekinga þegar yfirstjórn Guðspekihreyfingarinnar lýsti því yfir að hinn nýi Messías væri fundinn, indverskur drengur af brahminaætt, Jiddu Krishnamurti að nafni. Arið 1911 var stofnað sérstakt félag, Stjarnan í austri, til að undirbúa komu þessa nýja mannkynsfrelsara frarn á sjónarsviðið og ein deild úr því félagi var starfandi á íslandi í nokkur ár. Helgi leit svo á að hinn nýi Messías hlyti að vera náttúrufræðingur og hann taldi að þjóðum heims hefði enn ekki auðnast að uppgötva hann.25 Um aldamótin 1900 voru ekki nema örfáir einstaklingar á Islandi sem höfðu kynnt sér guðspekistefnuna. Þeirra á meðal var Ludvig Kaaber, kaup- maður og síðar bankastjóri. Var hann fjárhagslegur bakhjarl hreyfingarinnar á íslandi og gaf Guðspekifélaginu hús það sem hreyfingin á enn og stendur við Ingólfsstræti í Reykjavík. Árið 1908 stofnaði áhugafólk um guðspeki sérstakt félag á Akureyri en árið 1912 var í Reykjavík stofnuð fyrsta form- lega guðspekistúkan sem heyrði undir danska Guðspekifélagið. Eftir það fjölgaði stúkunum ört þannig að 1920 voru þær orðnar nægilega margar til að stofna sjálfstæða deild í alþjóðafélaginu.26 Guðspekihreyfingin höfðaði helst til menntamanna og fólks í efri millistétt, einkum kennara, sem virðast hafa séð í kenningum hennar leið til að gera sér grein fyrir samhengi trúar og vísinda. Hin hefðbundna trúfræði kirkjunnar var í hrópandi andstöðu við það sem margt fólk af aldamótakynslóðinni upplifði sem vísinda- legar staðreyndir og virtist þetta brenna sérstakiega á kennurum.27 Fyrsti forseti Guðspekifélagsins var Jakob Kristinsson guðfræðingur sem starfað hafði í nokkur ár sem prestur í söfnuði Islendinga vestanhafs. Atti hann þrjá bræður sem völdust til leiðtogastarfa í Samvinnuhreyfingunni, þá Hallgrím, Sigurð og Aðalstein, sem allir voru félagar í Guðspekifélaginu. Tóku þeir að sér að greiða laun bróður síns meðan hann gegndi forseta- embætti Guðspekifélagsins en því fylgdi umtalsverð kynningarstarfsemi og ferðalög.28 Eftir að Jakob lét af störfum sem forseti Guðspekifélagsins varð hann skólastjóri á Eiðum og síðar fræðslumálastjóri. 25 Helgi Pjeturss, Nýall, bls. 85. 26 Pécur Pétursson, „Trúarlegar hreyfingar í Reykjavík tvo fyrstu áratugi 20. aldar. Þriðji hluti.“ Bls. 130. 27 Sjá t.d. Pétur Pétursson, „Ihygli og athafnaþrá. Ásdr og hugsjónir Aðalbjargar Sigurðardóttur", Ritröð Guðjraðistofnunar. Reykjavík: Háskóli fslands, 2005, bls. 48. 28 Pétur Pétursson, „Trúarlegar hreyfingar í Reykjavík tvo fyrstu áratugi 20. aldar. Þriðji hluti.“, bls. 158. 110
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.