Skírnir - 01.09.2004, Blaðsíða 11
ar önn ur rit, bæði stór og smá, þýð ing ar úr lat ínu á ís lensku og
einnig á lat ínu úr ís lensku. Sumt af þessu er til á prenti en enn er
um tals vert magn lat ínu rita ein ung is varð veitt í hand rit um. Ef lit ið
er nán ar á þessi skrif má sjá að til tölu lega fá lat ínu bréf eru varð -
veitt frá miðri 16. öld og næstu ára tug um þar á eft ir. Með al merk -
ustu bréfa má telja bréf Þórð ar Mart eins son ar (um 1525–54) bisk -
ups Ein ars son ar, sem hann rit aði Peder Palla di usi (1503–1560)
Sjá lands bisk upi árið 1550 vegna hand töku föð ur síns og fram ferð -
is Jóns bisk ups Ara son ar og hans manna, svo og áð ur nefnd bréf
Guð brands Þor láks son ar til Pouls Mad sens.12 Vit að er að ýms ir
Ís lend ing ar, eins og Arn grím ur Jóns son lærði, áttu í bréfa skrift um
við er lenda lær dóms menn á síð ustu ára tug um 16. ald ar, eins og sjá
má af bréf um há skóla pró fess or anna Dav ids Chytræ us (1531–
1600) og Jo hanns Freders (1544–1604) í Rostock.13 Þeg ar kom ið
er fram á 17. öld er ljóst að bréfa skrift ir ís lenskra mennta manna á
lat ínu voru um tals verð ar eins og bréf þau sem finna má í hinu
mikla bréfa safni Ole Worms (1588–1654), pró fess ors í Kaup -
manna höfn, bera gleggst an vott um.14 Vin is burð ir á lat ínu, sem
kenn ar ar eða yf ir menn skóla gáfu nem end um sín um eða skjól -
stæð ing um að námi loknu og stúd ent ar höfðu í farteski sínu þeg -
ar þeir héldu utan til frekara náms eða í frama leit, má víða finna í
hand rit um frá 17. öld. Oft eru þess ir vitn is burð ir frek ar hefð -
bundn ir en stund um má þó rekast á testimon ia sem rit uð eru af
mik illi mál snilld og kunn áttu í klass ískri retó rík eins og skrif
Brynj ólfs Sveins son ar (1605–75) Skál holts bisk ups bera oft með
sér.15
Í lat ínu skól un um var skylda að nema lat neska ljóða gerð en
óvíst er hversu vel tókst að fram fylgja því á fyrstu ára tug um skól -
anna hér á landi. Árið 1593 kom út á prenti í Kaup manna höfn
Brev is comment ari us de Is landia eft ir Arn grím Jóns son, sem þá
var ekki nema rétt hálf þrí tug ur. Þetta verk mark aði að ýmsu leyti
erlend tungumál á íslandi… 295skírnir
12 Bréf Þórð ar: Dipl. Isl. XI, 663.
13 Arn grím ur Jóns son 1622: 76–78; 82–83; 84–85; 94–95. Sig urð ur Pét urs son
1994: 25–27; 35–37.
14 Í bréfa safni Ole Worms eru varð veitt rúm lega 100 bréf frá 18 Ís lend ing um.
15 Brynjólf ur Sveins son 1942: 40–41. Sig urð ur Pét urs son 1998c: 190.