Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 19
Þ e g a r v i s s a n e i n e r e f t i r … TMM 2010 · 4 19 slíkt heiti fremur en nýfrjálshyggju. Sumar breytingarnar hafi verið í anda hennar, aðrar gengið þvert á hana. Ríkisútgjöld hafi t.d. aukist verulega og ýmiss konar opinbert eftirlit og regluverk.8 Íslenskir frjáls­ hyggjumenn þreytast jafnframt ekki á að nefna að opinberum störfum á Íslandi hafi fjölgað um 30% frá árinu 2000 fram að hruni, átta árum síðar.9 Það þarf þó ekki að felast þversögn í því að ríkið þenjist út á tímum þegar á að einkavæða eignir þess. Enski heimspekingurinn John Gray heldur því fram í bók sinni Black Mass: Apocalyptic Religion and the Death of Utopia að með aukinni markaðsvæðingu hlaupi vöxtur í ríkið sem beita verður valdi sínu við endurdreifingu verðmæta. Sú var að mati Grays raunin í Englandi Viktoríutímabilsins og einnig á tuttugustu öldinni, á árunum þegar Margaret Thatcher sat á valdastól. Að mati Grays er aðeins hægt að ganga langt í einkavæðingu ríkiseigna með stóraukinni og skipulagðri miðstýringu.10 Burtséð frá því hvað lesendum finnst um rök Grays, horfir Atli í vörn sinni með öllu framhjá meginatriði Eilífðarvélarinnar, því sem bókin dregur nafn sitt af, sjálfri hugmyndinni um sjálfgengissamfélagið. Ef samfélagstilraun frjálshyggjunnar er óframkvæmanleg er til lítils að rekja allt sem afvega fór í framkvæmdinni, eða fullyrða að niðurstaðan sé eitthvað annað en það sem lagt var upp með og því ekki í samræmi við hugmyndafræðina.11 Frjálshyggjumenn verða að svara ásökuninni um að skýringarlíkön þeirra eigi uppruna í félagsvísindaskáldskap. Tengsl skýringarlíkansins við veruleikann hljóta að vega þungt í allri umræðu um það. Boðunarfrjálshyggja og klisjur samtíðarinnar Undirtitill Eilífðarvélarinnar er efni í vangaveltur, en greinarnar níu eru sagðar „uppgjör við nýfrjálshyggjuna“. Því má halda fram að í undirtitl­ inum felist sjónarhorn sem ekki sé fjallað um í greinunum níu, en þar er hvergi leitast við að skilgreina með hvaða hætti hin svokallaða „nýfrjáls­ hyggja“ síðustu þriggja áratuga víkur frá klassískri frjálslyndisstefnu. Er orðinu „nýfrjálshyggja“ fyrst og fremst ætlað að ögra? Er það hugsað sem uppnefni, rétt eins og hugtakið nýíhaldsstefna var í upphafi fyrst og fremst hugsað sem skammaryrði? Þeir sem aðhyllast frjáls­ hyggju eru flestir a.m.k. mjög gagnrýnir á hugtakið. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokkins, kallar það t.d. „orðskrípi“12 og Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir „baráttublæ“ einkenna orðið, þetta sé nafn sem „óvinir frjálshyggjunnar haf[i] um hana“.13 Í dómi um Eilífðarvélina setur Atli Harðarson fram svipaða skoðun, en hann segir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.