Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Blaðsíða 143

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Blaðsíða 143
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 4 143 til að sækja þangað eitthvað sem hann vanhagar um og er ekki lengur neinum til gagns, engum nema honum“. Og ljóðið endar svo: Skyldi hann aldrei aldrei aldrei ætla að ljúka sér af og hvað er það sem farið hefur forgörðum og hvað vill hann við húsið sem þekkja má af gulum plastpoka sem í þessum töluðum orðum fýkur framhjá með hvissi? Fyrir utan að draga fullkomlega upp stemningu andvökunnar, ekki síst það hversu tíminn tæmist í það sem virðist vera endalaust augnablik og ýmiskonar órar hrannast upp, þá kallar ljóðið á margvíslegar vangaveltur um mörk hins persónulega og samfélagslega (einkarými og opinbert rými) sem til dæmis birtist í manninum sem rótar í ruslinu og stendur einmitt á þessum mörkum. Nóttin er svið þarsem skýrar markalínur leysast upp, eins og þetta undarlega ástand á mörkum svefns og vöku sem nefnist andvaka. Hugsanir brjótast óheftar fram og allt rennur saman í eitt, persónuleg vandamál og beiskja, áhyggjur af stöðu heimilisins, samfélagsins og heimshryggð almennt, en ekkert af þessu er þó vandamálið, heldur leitar hugurinn að einhverri haldbærari ástæðu, rjátli við rusl. Maðurinn sem rótar í ruslinu er auðvitað er sá sem hefur tapað leiknum í þjóðfélagi sjálfhverfra smákónga og innantómra réttlætisridd­ ara. Sem slíkur er hann í raun fulltrúi alls þess sem ásækir hinn andvaka mann, eins og kemur fram í línunni „hvað er það sem farið hefur forgörðum“ og má heimfæra bæði uppá rusl, eitthvað sem er hent, en líka þá tilveru sem við erum stöðugt að eyðileggja fyrir sjálfum okkur á einn eða annan hátt. Því við búum einmitt í samfélagi og heimi sem farið hefur forgörðum, að því er virðist á einu augnabliki – því augnabliki þegar bónuspokinn, þetta tákn neyslu­ menningar okkar, fauk framhjá okkur með hvissi. En jafnframt er maðurinn í ruslinu frjáls undan oki neyslusamfélagsins, hann er fulltrúi þess sem engu sóar en nýtir allt, sem ekkert á og þarf því ekki að hafa áhyggjur af skuldum, því líf hans miðast aðeins við daginn í dag, eða réttara sagt nóttina í nótt, það augnablik sem plastpoki fýkur hjá – og er gripinn til að vera endurnýttur undir allt það sem farið hefur forgörðum. Þessvegna ert þú andvaka, því þú ert fangi á eigin heimili, í eigin samfélagi og heimi, meðan sá sem ríslar í ruslinu er frjáls, hann þarf ekki að sofa á nóttunni frekar en hann vill og sleppur því við andvökur. Hér er ég auðvitað komin í samræðu við þetta ljóð, tek upp þráðinn og spinn áfram, alveg eins og góðir siðir segja fyrir um. Því eins og bent var á hér í upp­ hafi er ekki annað hægt en að lenda í samtali við ljóð sem ávarpa lesandann svo ákveðið og krefja hann stöðugt um að velta fyrir sér stöðu sinni. Í síðasta og þriðja hluta bókarinnar eru nokkur löng ljóð sem öll einkennast af slíku sam­ tali við lesanda. „Annað líf“ er þó ekki ætlað lesandanum heldur ljóðmælanda sjálfum sem meðal annars hittir sjálfan sig fyrir „í andrými einverustunda / augnablikum með sjálfum þér“ og það kemur honum á óvart hversu „við­
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.