Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Blaðsíða 38
H a u k u r M á r H e l g a s o n
38 TMM 2010 · 4
álitinn vera tímabundnar leifar liðins tíma stendur valið, til langs tíma
litið, milli fullrar aðildar að Evrópusambandinu eða áframhaldandi
tilviljunarkenndra fríverslunarsamninga við Kína eða hvern þann
sem ber að garði, án nokkurrar þýðingar nema peningalegrar, án
nokkurra aukinna lýðréttinda og án nokkurs aukins svigrúms fyrir
frjáls félagasamtök. Yfirleitt er gengið út frá því sem vísu að orð séu
fær um táknun og aðgerðir. Aðeins þegar sú geta er ekki fyrir hendi,
þegar ranghugmynd er ríkjandi ástand, verður þessarar getu vart sem
nauðsynlegrar forsendu allra stjórnmála. Eftir 16 ára aðild að EES
samningnum væri lokun landamæra Íslands fyrir Evrópu sambærilegt
því að fella stjórnarskrá úr gildi og takmarka gildissvið lýðréttinda við
geðþóttaákvarðanir sveitarfélags – og það tækifærissinnaðs og geðklofa
sveitarfélags. Ég veðja á ófyrirséða möguleika stærra samfélags, ókann
aða möguleika uppnámsins sem í því felast að tengjast sameiginlegu
umdæmi hugsýkinnar.
Árni Óskarsson þýddi
Greinin er upphaflega samin fyrir Lettre International í Þýskalandi.
Tilvísanir
1 John Carlin. „No wonder Iceland has the happiest people on earth“. The Observer, 18. maí
2008.
2 Hermanni Stefánssyni kann ég bestu þakkir fyrir að benda mér á þetta rit.
3 Ólafur Ragnar Grímsson í Newsnight, BBC, 19. apríl 2010. http://news.bbc.co.uk/2/hi/8631343.
stm
4 “Inspired by Iceland video”, http://vimeo.com/12236680. Ímynd landsins erlendis er álitin svo
mikilvæg bæði í fjárhagslegum skilningi og af öðrum orsökum að herferðin var bókstaflega
skilgreind sem neyðarúrræði, svo vikið var frá viðteknum reglum og verkefninu úthlutað til
ákveðinna auglýsingastofa án þess að leitað væri eftir tilboðum frá samkeppnisaðilum.
5 Richard F. Thomasson. Iceland, the First New Society. University of Minnesota Press, 1980, bls.
7.
6 Sjá textann í heild á opinberri heimasíðu forsetaembættisins: http://forseti.is/media/
files/05.05.03.Walbrook.Club.pdf
7 Carlin í The Observer, 2008.
8 „Schizophrenia“. Diagnostic and statistical manual of mental disorders. The American Psychiat
ric Association, 2000.
9 Í myndinni koma fyrir vel leiknir önugir íslenskir „útrásarvíkingar“ sem una því ekki að fást
við millilið, heldur heimta að fá að hitta hinn fjarverandi Yfirstjóra og er þá ráðinn leikari til
að fara með það hlutverk.
10 Þetta hefur verið vefengt á grundvelli fornleifauppgötvana undanfarna þrjá áratugi sem styðja
kenningar um að norrænir landnámsmenn kunni að hafa komið nokkrum áratugum, jafnvel
öldum fyrr.
11 Richard F. Thomasson. Iceland, the first new Society. University of Minnesota, 1980, bls. 5.
12 Páll Theódórsson. „Hvað hét fyrsti landnámsmaðurinn?“ Skírnir, haust 2010. Bls. 511–522.