Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 36

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 36
H a u k u r M á r H e l g a s o n 36 TMM 2010 · 4 Merking Hvað var það sem gerðist og nú gengur undir nafninu Hrunið? Allt frá því að Guð dó á 19. öld hafa ríkisstjórnir verið önnum kafnar við að breiða yfir þá vöntun sem það stýrilögmál samfélagslífsins skildi eftir sig. Þar sem Íslendingar höfðu aðeins tekið kristni að nafninu til vakti sá atburður sáralitla athygli meðal þeirra, þótt yfirgnæfandi meirihluti heiðinna íbúa landsins tilheyri lúthersku þjóðkirkjunni allt fram til þessa dags. Á meðan hefur það lögmál sem í raun stýrir samfélagslífinu og á sér stoð í orðræðu, hugmyndafræði og tiltölulegum efnahags­ stöðugleika verið jarðneskt boðorð um fórn og umbun, eða vinnu og eftirlaun. Þegar það lögmál féll úr gildi skildi það eftir algjört tóm – í bókstaflegum skilningi var ekkert undir fótum okkar annað en þessi klettur í miðju hafinu, jafn snauður af merkingu og af trjám. Kröfur hinna ýmsu hópa mótmælenda og pistlahöfunda sem brugðust við atburðinum má flokka á eftirfarandi hátt: 1. Sú efnahagslega krafa að tómið verði hulið eins hratt og mögulegt er – þ.e. stöðugleika komið á í efnahagslífinu, hugmyndafræðileg viðmið orðræðunnar lagfærð o.s.frv. Þetta hefur verið meginmarkmið nýju ríkisstjórnarinnar. 2. Sú krafa sósíal­demókrata að tómið verði ekki aðeins hulið heldur fyllt með því að leiða Yfirstjóra í öndvegi, svo sem með aðild að Evrópusambandinu, svo að regluverkið öðlist stöðugleika á einhverjum ímynduðum stað fyrir handan sem héti þá Brussel. Þetta hugsýkisferli hefur verið annað markmið ríkisstjórnarinnar. 3. Sú anarkíska krafa að tómið verði skilið eftir opið – í ljósi þess að það sem var rangt var ekki hrunið heldur það kerfi sem átti allan tímann skilið að hrynja. Það ætti hvorki að vera neinn Yfirstjóri né koma nokkurs konar yfirvarp í staðinn. Sumir þeir sem halda þessu viðhorfi fram tilheyra níumenningahópnum svokallaða sem nú er ofsóttur af ríki og lögreglu. 4. Sú kommúníska krafa að það beri að fást við tómið sem slíkt, að við, þjóðin, eigum að nota tækifærið og byrja frá grunni og fylla það af hægri og vökulli yfirvegun samkvæmt áætlun í þágu samfélags og jafnræðis. Skýrasta birtingarmynd þess var yfirlýsing sem birtist árið 2008 þar sem hvatt var til þess að stofnað yrði nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá. Sú hugmynd Naomi Klein að fylgismenn Miltons Friedmans hafi gert áföll að aðferðafræði hefur opnað augu margra. Að Íslandi steðja enn allar þær hættur sem lýst er í bók hennar Áfallskenningin.31 Að verki eru sterk öfl sem vinna að því að fórna orkuauðlindum og öðrum grundvallarverðmætum fyrir skammvinnan efnahagsbata, en sú ríkis­ stjórn sem var kosin eftir hrunið hefur enn sem komið er einkum verið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.