Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 37
A ð v e r a e y l a n d TMM 2010 · 4 37 vinstrisinnuð að nafninu til.32 Hins vegar starfar nú af krafti á ýmsum vígstöðvum andkapítalísk hreyfing sem ekki var til á þensluárunum, svo sem áðurnefndir anarkískir aðgerðasinnar, íslensku Attac­samtökin og fjölmargir einstakir pistlahöfundar, bloggarar og mótmælendur. Hinn mikli munur á opinberri umræðu fyrir og eftir áfall Íslendinga árið 2008 gefur til kynna að Hrunið kunni enn að reynast lífsnauðsynlegt kall til veruleikans fremur en náðarhögg. Árið 2005 bar enginn brigður á blátt áfram rasísk ummæli Ólafs Ragnar Grímssonar forseta um hvað Íslendingar væru frábærir,. En þegar hann brá sér í gervi eldfjalls árið 2010 olli hann aftur á móti miklu uppnámi og þau viðbrögð voru sjálf gagnrýnd og umtöluð. Níu binda skýrslan um stjórnmál og viðskipti í aðdraganda og kjölfar efnahagshrunsins, sem var samin af óháðri nefnd og gefin út af Alþingi, er langvinsælasta bók ársins 2010 og hefur almennt verið hrósað sem ítarlegri, óvæginni og óhlutdrægri. Það er löng vegferð framundan, en sameiginlega er verið að reyna að tengja orð við veruleika. Þetta, möguleikinn að öðlast merkingu, liggur handan stjórnmála og er í þeim skilningi hápólitískt. Árið 2005, á meðan aðrir landsmenn lágu í pólitískum dvala, færðu samtökin Saving Iceland með sér andkapítalíska aðgerðastefnu til landsins í baráttu gegn áliðnaðinum. Fólk varð stórhneykslað á ósvífni þeirra. Íslenskar andófshreyfingar höfðu í raun aldrei séð fyrir eða náð fram breytingum. Eins og þegar hefur verið nefnt gengu herstöðvaand­ stæðingar á hverju sumri áratugum saman frá bandarísku herstöðinni og ítrekuðu fullvissu sína um að áorka engu í hverju skrefi aftur á bak. Eftir á að hyggja gegndu hinar alþjóðlegu mótmælabúðir Saving Iceland hlutverki þjálfunarbúða fyrir mótmælin 2008–2009 sem kölluð hafa verið „búsáhaldabyltingin“. Aðferðafræði þeirra voru beinar aðgerðir, að trufla aftur og aftur vinnu við stífluna sem verið var að byggja til að útvega álverksmiðju Glencore International orku. Úrræði og verkleg kunnátta baráttufólksins reyndust hafa mikla þýðingu eftir hrunið. Ekki var þó síður mikilvægt það hugarfar sem breiddist út á milli manna – sú einfalda sannfæring að orð og gerðir eru í tengslum við heiminn og hafa áhrif á hann. Þessi óformlega hreyfing, sem varð til með frjálsum tengslum einstaklinga, hefði ekki getað orðið til nema vegna EES­ og Schengen­sáttmálanna sem neyddu Íslendinga til að halda opnum gáttum fyrir evrópska ríkisborgara.33 Flestir af þeim vinstrisinnum sem eru ekki beinlínis andvígir umsókn Íslands að Evrópusambandinu gera lítið úr mikilvægi hennar og segja hana ekki skipta máli fyrir raunverulega, róttæka pólitík. Sumir leika út báðum spilum. Ég er ekki sammála. Þar sem EES­samningurinn er nú
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.