Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 72
H e i m i r Pá l s s o n
72 TMM 2010 · 4
liggur bara í að þá verður sonur að merkja ,dóttursonur‘, því samkvæmt
SnorraEddu er Bölþór afi Óðins. – En einmitt samkvæmt SnorraEddu.
Við erum sífellt að nota það verk til að skýra miklu eldri kveðskap.8
En meður því að hér hefur oftar en um sinns sakir verið vikið að
SnorraEddu og því hvernig höfundur hennar hafi lesið goðsögurnar
fyrir okkur, er meira en tímabært að víkja að þeim útfgáfum Gunnlaðar
sögunnar sem Snorri býður upp á.
Gunnlaðarsögur Snorra-Eddu
Svo mikill er munur á gerðum SnorraEddu að ógerningur er annað en
tala um tvær sögur þar. Önnur er vel kunn og prentuð í öllum útgáfum.
Það er snilldarverkið sem lesa má í Konungsbókargerðinni og öðrum
samstofna handritum. Heildarsagan um skáldamjöðinn er of löng fyrir
þessa grein, en kaflinn um Gunnlöðu er nauðsynlegur:
Bragi svarar: Sjá saga er til þess að Óðinn fór heiman og kom þar er þrælar níu
slógu hey. Hann spyr ef þeir vilji að hann brýni ljái þeirra. Þeir játa því; þá tekur
hann hein af belti sér og brýndi, en þeim þótti bíta ljáirnir miklu betur og föluðu
heinina. En hann mat svo að sá er kaupa vildi skyldi gefa við hóf, en allir kváðust
vilja og báðu hann sér selja, en hann kastaði heininni í loft upp. En er allir vildu
henda, þá skiptust þeir svo við að hverr brá ljánum á háls öðrum.
Óðinn sótti til náttstaðar til jötuns þess er Baugi hét, bróðir Suttungs. Baugi
kallaði illt fjárhald sitt og sagði að þrælar hans níu höfðu drepist, en taldist eigi
vita sér von verkmanna. En Óðinn nefndist fyrir honum Bölverkur. Hann bauð
að taka upp níu manna verk fyrir Bauga, en mælti sér til kaups einn drykk af Sutt
ungamiði. Baugi kvað einskis ráðs eiga af miðinum, sagði að Suttungr vildi einn
hafa, en fara kveðst hann mundu með Bölverki og freista ef þeir fengi mjöðinn.
Bölverkur vann um sumarið níu mannsverk fyrir Bauga, en að vetri beiddist
hann Bauga leigu sinnar. Þá fara þeir báðir til Suttungs. Baugi segir Suttungi
bróður sínum kaup þeira Bölverks. En Suttungur synjar þverlega hvers dropa af
miðinum. Þá mælti Bölverkur til Bauga að þeir skyldu freista véla nokkurra ef
þeir megi ná miðinum, en Baugi lætur þat vel vera. Þá dregur Bölverkr fram nafar
þann er Rati heitir, og mælir að Baugi skal bora bjargið ef nafarinn bítur. Hann
gerir svo. Þá segir Baugi að gegnum er borað bjargið, en Bölverkur blæs í nafars
raufina, og hrjóta spænirnir upp í móti honum. Þá fann hann að Baugi vildi svíkja
hann og bað bora gegnum bjargið. Baugi boraði enn, en er Bölverkur blés annað
sinn, þá fuku inn spænirnir. Þá brást Bölverkur í orms líki og skreið í nafars
raufina, en Baugi stakk eptir honum nafrinum og missti hans. Fór Bölverkur
þar til sem Gunnlöð var og lá hjá henni þrjár nætur, og þá lofaði hún honum að
drekka af miðinum þrjá drykki. Í inum fyrsta drykk drakk hann allt úr Óðreri, en
í öðrum úr Boðn, í inum þriðja úr Són og hafði hann þá allan mjöðinn. Þá brást
hann í arnarham og flaug sem ákafast. En er Suttungur [svo í Trektarbók og Upp