Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 114
J ó n S i g u r ð s s o n 114 TMM 2017 · 4 (Njörður 1973:143). Bent hefur verið á að Bjartur sé eins konar norrænn Don Kíkóti, blindaður að berjast við vindmyllur. Honum hefur verið líkt við Lé konung með Kordelíu í fangi, í leikriti Shakespeares (Hallberg 1970:246). Ýmsir hafa séð í verkinu ömurlegan ósigur og niðurlægingu Bjarts og fjölskyldu hans. Hreppstjórinn á Úti-Rauðsmýri tekur beitarhúsin aftur til sín, en fjölskylda kotungsins hrökklast á fjöll. Menn telja verkið harmleik í fimm þáttum að hefðbundnum hætti, og nefnir Halldór Guðmundsson það einkenni verksins að Bjartur tapar einhverju mikilsverðu í hverjum þætti (Halldór 1996:80). Vésteinn Ólason hefur bent á að Bjartur hefur ein- kenni hetjunnar og vitnar til orða skáldsins að hetja getur: „horfst í augu við þýngstu reynslu og algerðan ósigur í lífi sínu  …“ (Vésteinn 1993:35. Hall- dór 1946:Minnisgreinar um fornsögur). Vésteinn sér fleiri fleti og hliðar á verkinu, en segir: „Út frá þessu er Bjartur tragísk hetja“ (Vésteinn 1993:37). En skilgreining þessa skáldverks er ekki einhlít. Harmleikur á að birta harm- rænt val. Þar er kostum búin hetja sem verður að velja um einhverjar eilífar frumkvaðir mennskunnar, en hefur aðeins illa valkosti, engan góðan. Þrjóska og geðþótti Bjarts rjúfa allar slíkar hömlur og stefna áfram og út, og líf Ástu er líka á öðrum brautum. Í einni vídd virðist sagan af Bjarti og fjölskyldu hans við fyrstu sýn ein- tómar blekkingar og sjálfsblekking. „Sjálfstæði“ þessa unga bónda er í því fólgið að kot er sett undir lepp. Varla getur söguefni sem fremur vísar til arf- tekinna samfélagshátta eða er andstæðara nýrri sjálfsábúðarstefnu bænda. En í þessu verki skipta aðrar ástæður og áhrif meira máli. Verkið er hljómkviða óvæntra mótsetninga. Sjálfsblekking og þrautseigja í nauðum geta leikist á og orkað til eflingar. Og ekki smækkar þetta endilega óskadrauma, dugnað og harðfylgi ungrar fjölskyldu í erfiðleikum. Líklega er nær að ætla að hér sé vitni um hamarinn sem Bjarti er ætlað að klífa. Og þetta rekst alls ekki á víðtækan samfélagsboðskap verksins. Verkfallsmenn hafa djúp áhrif á Bjart. Stolið brauð ögrar hugmyndum hans um heiðarleika og það ögrar stolti hans að þiggja af öðrum. Efa- semdir vakna um hollustu við stjórnvöldin, og nú er Rússakeisari fallinn (H 2011:710–716). – Er allt að riðlast? Er hér að hefjast endurmat allra gilda í anda Nietzsches (Umwertung aller Werte)? En Bjartur fer ekki alla leið heldur stansar við. Hann velur loks aðra stefnu og tekur smáheim eigin fjölskyldu, fátæktarhokur og basl, fram yfir aðra kosti. Fræðimenn hafa fjallað um þá hlið verksins sem veit að samfélagsmálum, landbúnaði og stjórnmálum. Þeir hafa borið söguna við mælistikur sam- félagslegrar raunsærrar skáldsögu og metið frávik og sérstöðu. Hér er því haldið fram að skilgreiningin geti ekki verið einhlít, það sé engin ein kór- rétt niðurstaða um þetta; til slíks sé verkið of margrætt, of lifandi auðugt. Hér verður sagt að mestu skiptir að sagan er baráttusaga, meðal annars um margan ósigur fyrir öðrum og fyrir sjálfum sér. Hún lýsir bæði innri og ytri baráttu, og þessi barátta er eðlislæg manninum, endalaus og eilíf.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.