Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 37
S u n n a n v i n d u r TMM 2018 · 4 37 Þegar við mamma komum aftur upp stóð ókunnug kona á stofu- gólfinu og skrifaði hratt í svarta möppu. Hún var ákveðin á svip, brúnt hárið bundið í þéttan hnút á hnakkanum, eldrauðar varirnar kipraðar saman af einbeitingu. Úlfhildur sat niðurlút í gulum stól og pabbi stóð við hlið hennar með krosslagðar hendur. Hann leit hvasst á mig þegar hann sá mig nálgast en mamma gekk upp til hans og hvíslaði einhverju í eyrað á honum. Ég hélt mig í hæfilegri fjarlægð og þegar Úlfhildur leit upp brosti ég til hennar og sendi henni uppörvandi augnaráð. Konan hélt áfram að skrifa en eftir nokkur augnablik skellti hún möppunni saman og leit upp. „Eins og staðan er núna er ekkert sem við getum gert fyrir hana. Það þarf að lýsa eftir foreldrum hennar og ef þeir finnast ekki þarf að gera ráðstafanir um fóstur. Auk þess þarf að finna út hvaða mál stelpan talar og finna túlk.“ Konan spurði mömmu og pabba hvort það væri í lagi að Úlfhildur yrði hjá okkur í nokkrar nætur í viðbót á meðan greitt yrði úr þessu öllu saman. Mamma og pabbi hvísluðu eitthvað sín á milli og samþykktu að lokum með semingi. Ég varð himinlifandi, lang- aði mest að hlaupa til konunnar og faðma hana en hélt þó aftur af mér. Áður en hún fór tjáði hún okkur að það kæmi tungumálasérfræðingur til okkar daginn eftir til að reyna að finna út úr tungumáli Úlfhildar. Seinna um kvöldið, þegar við vorum búin að hátta hvíslaði Úlfhildur einhverju til mín. Ég hélt að hún væri að segja mér eitthvað á sínu eigin tungumáli og það var ekki fyrr en hún endurtók orðið að ég skildi að hún var að segja takk á íslensku. „Ekkert að þakka,“ hvíslaði ég til baka. Morguninn eftir vorum við að horfa á sjónvarpið þegar dyrabjöll- unni var hringt. Í sjónvarpinu var þáttur um norðurslóðir, horaðir og skjálfandi ísbirnir hírðust á litlum jökum sem rak yfir kaldranalegt íshafið. Bankað var létt á hurðina á sjónvarpsherberginu og mamma steig inn, unglegur maður í síðum frakka, með kringlótt gleraugu kom á eftir henni. Mamma kynnti manninn fyrir mér og Úlfhildi og bauð honum sæti í sófanum. Hún slökkti á sjónvarpinu og maðurinn tók að ávarpa Úlfhildi og reyna að fá hana til þess að segja eitthvað. Hann benti á sjálfan sig og kynnti sig, benti svo á Úlfhildi og lyfti höndum spyrjandi. Úlfhildur sagði nafnið sitt og maðurinn hallaði sér forvitinn á móti henni. Hann tók upp símann sinn og bað hana að endurtaka nafnið. Maðurinn hélt áfram að spyrja Úlfhildi spjörunum úr í um það bil klukkutíma, tók upp allt sem hún sagði og punktaði niður hjá sér þar til honum fannst komið nóg. Á leiðinni út spurði mamma hann hvort hann væri búinn að komast að því hvaða tungumál Úlfhildur talaði en maðurinn hristi bara hausinn og muldraði eitthvað um velsku og finnsk- úgrísk tungumál. TMM_4_2018.indd 37 6.11.2018 10:22
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.