Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Blaðsíða 80
G u ð r ú n S t e i n þ ó r s d ó t t i r
80 TMM 2018 · 4
Skáldsögur Jane Austen eru gott dæmi um sögur sem orðið hafa upp-
spretta mikillar sköpunar. Nefna má að á bókmenntavefsíðunni Goodreads
er að finna lista yfir þær 469 Jane Austen fanfiction bækur sem hafa verið
útgefnar og þykja bestar en einkum hafa verið skrifaðar framhaldssögur af
Hroka og hleypidómum.29 Bækurnar eru margvíslegar, til dæmis ástarsögur,
hrollvekjur og sjálfshjálparbækur. Sumar þeirra gerast í beinu framhaldi af
bókunum sem þær byggja á en aðrar á öðrum tímum. Þá er líka misjafnt
hvaða persónur eru í brennidepli en stundum er sérstaklega skrifuð saga per-
sóna sem lesendur hafa fengið minna að lesa um en þeir hefðu kosið.30 Eins
og sjá má á myndunum hér til hliðar er algengt að á bókarkápunum standi:
„Pride and Prejudice continues“ sem orkar eflaust eins og segull fyrir bóka-
orma sem þrá fréttir af vinum sínum.
Annað gott dæmi um aðdáendaskáldskap eru allar framhaldssögurnar
sem skrifaðar hafa verið um Harry Potter og aðrar persónur úr samnefndum
sögum og/eða sögur sem gerast í sama galdraheimi og hann lifir og hrærist
í. Sumar þessara aðdáendasagna segja frá lífi persóna áður en sögur J. K.
Rowling hefjast. Margir aðdáendur hafa til að mynda skrifað um erfiða æsku
Dracos Malfoy, eins helsta óvinar Harrys í skólanum, og fjallað sérstaklega
um hvernig hann breytist úr þorparanum sem hann er upprunalega í hetju
í aðdáenda-framhaldssögunum.31 Ólíkt sögunum um persónur Austen, sem
margar er hægt að nálgast í útgefnum bókum, lifa aðdáendaspunarnir um
galdrastrákinn og vini hans einkum á netinu.32 Á vefsíðunni Harry Potter-
Fanfiction, sem er aðeins einn söguvefur af mörgum, er til dæmis að finna
rétt rúmlega 85.000 sögur eftir tæplega 39.000 höfunda en alls eru skráðir
félagar síðunnar 93.982.33 Rétt er að geta þess að J. K. Rowling hefur í gegnum
tíðina reynt að koma til móts við aðdáendur Harry Potters og félaga. Á
vefsíðunni Pottermore; sem helguð er Harry Potter heiminum; birtir hún
reglulega fréttir af persónum bókanna og sínar eigin framhaldssögur út frá
sögunum. Fólk getur skráð sig inn á vefsíðuna og meðal annars verið flokkað
í hús í Hogwarts, skoðað ýmsar aðstæður sagnanna, tekið ýmsar kannanir
um sögurnar og lesið sér meira til um persónur Harry Potter-bókanna og
galdraheiminn.34
Þessi mikla framlenging á lífi persóna og söguheimum J. K. Rowling og Jane
Austen, sýnir vel hversu félagslegur lestur bókmennta er en ekki síst hversu
algengt er að persónur skáldsagna verði ímyndaðir vinir lesenda sem þeir
eiga erfitt með að sleppa hendinni af.35 Rannsóknir hafa enda leitt í ljós að
aðdáendaskáldskapur sé oftar en ekki „hvað ef“ sögur sem hverfist að mestu
um persónur og sambönd þeirra og að einstaklingar sem skrifi frásagnir af
þessu tagi skapi sterkari einhliða sambönd en aðrir.36
Sumir aðdáendur láta sér ekki nægja að skrifa út frá einni bók eða einum
bókaflokki heldur blanda þeir saman ólíkum söguheimum; þannig að til
dæmis er sögð saga persóna úr einum söguheimi í allt öðrum og þær jafnvel
látnar kynnast þekktum persónum sem þar búa; þannig gefst ímynduðum
TMM_4_2018.indd 80 6.11.2018 10:22