Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Blaðsíða 101
Æ t t a r m ó t n ö r d a n n a
TMM 2018 · 4 101
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Ættarmót nördanna
Yfir eina helgi um miðjan september var viðburðurinn Miðgarður haldinn í
Laugardalshöll. Hátíðin, eða öllu heldur poppkúltúr-messan, var langþráður
viðburður meðal áhugafólks um myndasögur, bíómyndir, borðspil, tölvu-
leiki, búninga og allt sem telja má til nördamenningar. Að Miðgarði standa
myndasögu- og spilabúðin Nexus, samtökin Cosplay Iceland og hinn íslenski
armur Nordic Cosplay-samtakanna. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíð af þessu
tagi er haldin á Íslandi og miðað við viðtökurnar eru miklar líkur á að Mið-
garður verði haldinn árlega héðan í frá.
Frá laugardagsmorgni fram á sunnudagskvöld var hægt að vappa um
svæðið, skoða sölubása, spila, úða í sig pítsum og nammi og hlusta á fyrir-
lestra um allt milli Star Wars og jarðar. Miðgarðsmiðarnir seldust upp báða
dagana og margir þurftu frá að hverfa. Gamlir nördar liðu um í sæluvímu
og var hægt að greina á tali gesta að enginn hefði búist við því að hátíðin
yrði jafn vel heppnuð og vinsæl eins og raunin varð. Það var líkt og fólk
hefði búist við fimm lúðum, bunka af krumpuðum myndasögubæklingum,
þriggja daga gamalli pítsu og einni manneskju í búningi gerðum úr svörtum
ruslapoka. Sumir komust við og lýstu því yfir að allir draumar bernskunnar
væru að rætast. Fyrir þau okkar sem eldri voru var sérlega gaman að sjá upp-
dubbaða unglinga ganga um, talandi sín á milli ensku með amerískum hreim
og gleðjast. „Þau vita ekki hvað þau hafa það gott,“ sögðu gömlu hundarnir
á milli þess sem þeir rifjuðu upp sögur af því hvernig þeir þurftu sjálfir að
vaða eld og brennistein til að redda sér einu eintaki af Sandman-blaði. Allt
þar til bjargvætturinn Gísli í Nexus og meðreiðarsveinn hans Pétur Yamagata
opnuðu nördum vin í eyðimörkinni, að ógleymdri Bóksölu stúdenta þar sem
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur með meiru stóð myndasögu-
vaktina.
Mikla athygli vakti að þátttakendur í búningakeppni helgarinnar voru
óvenju margir. Heimatilbúinn Hulk, japanskar teiknimyndapersónur, Svarta
ekkjan, Deadpool, Köngulóarmaðurinn, Princess Bubblegum, Garth og
Wayne úr Wayne’s World og Stormsveitarmenn voru meðal þeirra fjölmörgu
persóna sem settu svip sinn á höllina. Vert er að minnast á að drengirnir
í Wayne’s World-búningunum voru yngri en bíómyndin sjálf. Sumar per-
sónurnar voru öllu nýstárlegri eins og til dæmis drengurinn með bakpokann
TMM_4_2018.indd 101 6.11.2018 10:22