Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Blaðsíða 106
U n n u r B i r n a K a r l s d ó t t i r
106 TMM 2018 · 4
Unnur Birna Karlsdóttir
Fasismi fortíðar og blikur
við sjónarrönd
Um fasisma á Íslandi forðum og álitamál
samtímans á tímum nýfasískra hreyfinga
Í þingræðu þann 31. janúar 2017, í umræðu um stjórnmálaástandið í Banda-
ríkjunum, fullyrti Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, að forseti
Bandaríkjanna væri fasisti.1 Slík staðhæfing kann að vekja furðu þar sem
um er að ræða forseta landsins sem hefur í huga margra talist öflugasti full-
trúi lýðræðis í heiminum. En Ásta Guðrún er ekki ein um þessa skoðun.
Bandaríski fræðimaðurinn Robert O. Paxton, sem er sérfræðingur í sögu
fasisma, hefur til dæmis svarað því aðspurður að í málflutningi Trumps og
nánustu samverkamanna hans séu ýmis atriði sem minni óþægilega á fasíska
tilburði þekkta úr sögu Ítalíu og Þýskalands á árunum 1920–1945. Annað í
málflutningi og stjórnunarstíl Trumps segir hann ekki eiga skylt við fasisma
samkvæmt fræðilegri skilgreiningu heldur endurspegli öfgakapítalisma, auð-
valdsstjórn og einræðistilburði, drifna áfram af hroka milljónamærings sem
hefur um árabil rekið stórfyrirtæki og telur sig með sama hætti geta deilt og
drottnað á forsetastóli; líkt og Bandaríkin séu eins og hvert annað einkastór-
fyrirtæki undir hans stjórn.2
Hvað er fasismi?
Eflaust eru deildar meiningar um þetta svar Paxtons en fullyrðingin um
að Trump sé fasisti leiðir óhjákvæmilega hugann að því hvað það merkir?
Skiljum við merkingu orðsins fasismi? Þekkjum við sögu þess? Annað er
svo að orðið fasisti virðist nú á tímum oft notað sem skammaryrði um þann
sem hefur sýnt yfirgang, valdníðslu, ruddaskap eða viðhaft niðurlægjandi
orðbragð í garð annarra. En er það rétt meðferð á hugtakinu, að nota það
sem hreint skammaryrði? Beitum við ef til vill hugtökum með svarta fortíð
of kæruleysislega í dægurþrasi samtímans? Þessar spurningar eru ekki nýjar
af nálinni og sem dæmi skrifar rithöfundurinn George Orwell árið 1944 að
ein brýnasta spurning samtímans, sem engin skýr svör hefðu fengist við,
væri: Hvað er fasismi? Sjálfur sagðist hann ekki hafa svarið og kvaðst þeirrar
TMM_4_2018.indd 106 6.11.2018 10:22