Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 40
Þ o r va l d u r S i g u r b j ö r n H e l g a s o n
40 TMM 2018 · 4
Ég setti krossinn í gluggann og hallaði mér aftur í rúmið. Leyfði tár-
unum að flæða þar til ég sofnaði.
Það varð uppi fótur og fit þegar mamma og pabbi fréttu af hvarfi Úlf-
hildar. Ég sagði þeim frá skipinu en þau virtust ekki trúa mér, hringdu
í lögregluna og létu lýsa eftir henni. Um kvöldið kom lögreglumaður og
talaði við mig, þegar ég sagði honum frá skipinu hringdi hann nokkur
símtöl en sagði engar skipaferðir hafa sést frá okkar hverfi þennan
dag. Fjallað var um mál Úlfhildar í fjölmiðlum en eftir nokkrar vikur
virtust flestir vera búnir að gleyma henni. Opinbera skýringin var sú
að hún væri flóttamannsbarn sem hefði komið til landsins ólöglega og
litlu púðri var eytt í að rannsaka afdrif hennar. Ég hafði engar áhyggjur
sjálfur, enda vissi ég að hún hefði komist örugg burt. Ég hef þó oft
hugsað um hana síðan þá og sérstaklega á þessum árstíma. Ég velti því
stundum fyrir mér hvert hún hafi farið, hvort hún hafi ef til vill farið
til Nýja heimsins eins og við. Stundum hef ég jafnvel velt því fyrir mér
hvort þetta hafi yfir höfuð gerst en þá lít ég á krossinn hennar Úlfhildar
sem hangir yfir rúminu okkar Emmu og minningarnar streyma fram
ljóslifandi.
Elsku Þröstur, það kemur þér eflaust á óvart að ég skuli vera svo upp-
tekinn af manneskju sem ég þekkti svo stutt og fyrir jafn mörgum árum.
En það er svo skrýtið með suma atburði og sumt fólk, hvernig þau geta
greypt sig í minnið eins og kvikmynd í stöðugri endursýningu sem er
alltaf verið að klippa upp á nýtt. Það væri gaman að heyra frá þér, hvort
þú átt sjálfur einhverjar minningar um Úlfhildi og frá þessum tíma. Að
öllu jöfnu þætti mér gaman að fá fréttir af ykkur þarna suðurfrá. Var
uppskeran jafn góð og í fyrrahaust? Hafa skepnurnar átt auðvelt upp-
dráttar? Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vonandi hittumst við
heilir á nýju ári. Emma hefur verið að tala um að sig langi til að komast
í aðeins hlýrra loftslag svo það er aldrei að vita nema við skreppum í
heimsókn til ykkar yfir fjöllin.
Þinn bróðir,
Hrafn
TMM_4_2018.indd 40 6.11.2018 10:22