Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Qupperneq 79
Æ t l a r þ e s s u m f r á s ö g n u m a l d r e i a ð l j ú k a ?
TMM 2018 · 4 79
lesa leikritið Harry Potter og bölvun barnsins þegar það kom út árið 2016 til
að fá fregnir af Harry og félögum hans.24
Ímyndaða sambandinu við skáldsagnapersónurnar er ekki endilega lokið
þegar lestri á bók lýkur. Eftir á er ekki óalgengt að lesandinn haldi áfram
að hugsa um persónur, eigi jafnvel í ímynduðum samræðum við þær og
skapi framhaldssögur þar sem hann veltir fyrir sér afdrifum þeirra, líðan og
gjörðum. Sumir láta sér ekki nægja að láta hugann reika heldur skrifa fram-
haldssögur persónanna og gefa þær meira að segja út. Við þekkjum þessar
gerðir bókmennta undir hugtakinu Fanfiction eða aðdáendaskáldskapur/
aðdáendaspuni. Slíkur skáldskapur vísar nánar tiltekið „til sagna sem skrif-
aðar eru af aðdáendum en þær byggjast á fléttu og persónum annaðhvort úr
einni ákveðinni sögu eða bókaflokki; oft sýnir aðdáendaskáldskapur fyrrum
söguheim í nýju, og stundum furðulegu, ljósi.“25 Skáldskapur af þessu tagi er
gjarnan talinn vera aðferð lesenda til að fylla í eyður upprunalegu sagnanna
en oftar en ekki kjósa þeir að skrifa sérstaklega um bakgrunn persóna, til-
finningar þeirra, þrár og ástæður fyrir ýmsum gjörðum þeirra. Ástæður þess
að fólk skrifar aðdáendaskáldskap geta verið margvíslegar en tveir þættir
virðast þó skipta sérstaklega miklu máli. Annars vegar tilfinningaleg tengsl
lesenda við persónur og hins vegar andóf þeirra gegn valdi höfundar, en
sumum aðdáendum finnst þeir skilja og þekkja persónur betur en þeir sem
sköpuðu þær í upphafi. Aðdáendur gera þó greinarmun á staðreyndum úr
upprunalegum bókmenntum (e. canon) og þeim sem koma fram í aðdáenda-
skáldskap (e. fanon). Í Harry Potter sögunum er það til dæmis staðreynd að
Sirius Black er guðfaðir Harrys en aðdáendastaðreynd að Snape sé guðfaðir
Dracos. Fræðikonan Jennifer L. Barnes hefur bent á að stundum er ekki ljóst
hvor gerðin af staðreyndum er sterkari í huga lesenda. Til marks um það
hefur hún fjallað um rithöfund, sem skrifað hafði vinsælan bókaflokk. Höf-
undurinn fékk marga tölvupósta frá reiðum lesendum, eftir útgáfu einnar
bókarinnar, sem sökuðu hann um að hafa kallað föður aðalpersónunnar
röngu nafni. Í ljós kom að í fyrri bókum hafði aldrei verið gefið upp nafn
á þessari tilteknu persónu en í aðdáendaskáldskap var löngu búið að nefna
hana.26
Aðdáendaspuni sprettur ekki aðeins upp af bókmenntum heldur getur
líka átt rætur að rekja til kvikmynda, sjónvarpsþátta, teiknimyndasagna eða
tölvuleikja.27 Þessi bókmenntagrein hefur ekki síst blómstrað með tilkomu
Internetsins en feikilega margar vefsíður eru helgaðar aðdáendaspuna af
ýmsu tagi. Til dæmis má nefna síðuna Archive of Our Own sem aðdáendur
bjuggu til og reka sjálfir til að hafa aðdáendaverk sín í friði. Þar er að finna
yfir 4.052.000 aðdáendaspuna, sem hafa verið skapaðir meðal annars út
frá bókmenntum, kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, leikritum, tölvuleikjum,
myndasögum og lífi frægs fólks, en alls eru skráðir notendur síðunnar yfir
1.597.000 talsins.28
TMM_4_2018.indd 79 6.11.2018 10:22