Ófeigur - 15.08.1948, Page 7
ÓFEXGUR
7
útbreidd í Skagafirði austan vatna og sterkur grunur
um, að hún hafi komizt gegxram varnarlínuna alia leið
vestur að Blöndu. Var hinn mesti samhugur og félags-
andi í sjálfbjargarsamtökum Skagfirðinga og Húnvetn-
inga um að beita ýtrustu varúð gagnvart garnaveik-
inni. Hafði hvergi komið fram jafnákveðinn vilji um
bændamál, síðan Selfosshreyfingin kom til sögunnar.
En forkólfum Búnaðarfél. Islands er ekki um að bænd-
ur ráði sjálfir fram úr sínum vandamálum og brutu
þessa norðlenzku bændahrejÆingu á bak aftur með
kergju og loforðum sem ekki á að efna. Vegna norð-
lenzkra bænda, bæði í Þingeyjar- Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslu var mér áhugamál, ao garnaveikin jrrði
upprætt, þar sem hún er nú óátalin mitt á milli frið-
uðu svæðanna. En Bjarni Ásgeirsson og búnaðarráðu-
nautar har.s unna í flestum hlutum mest því sem er
hálft og veikt, og svo var enn. Hættulegasta kara-
kúlpestin er friðlýst milli héraða þar sern búið er, með
amum tilkostnaði að útrýma þessum vágesti.
X.
Bændurnir höfðu verið víðsfjarri, þegar bolsivikar
héidu hina miklu uppskeruhátíð til að deila út þeim 600
milljónum, sem Bandaríkin höfðu skilið eftir í hlaði, tii
að sýna, að þeir hefðu ekki verið neinir landshorna-
sirklar eða ölmusumenn. En eftir að skiptin höfðu farið
fram, komu gistivinir úr Framsóknarflokknum til skjal-
anna og spurðu hvað hægt væri að gera fyrir bændur.
Var þá sett í lög, að bændur skyldu fá tíu milljónir kr.
í Ræktunarsjóð og fimm til húsagerðar. Hvíldi nú sú
skylda á Bjarna Ásg. og Eysteini, að handsama ein-
hverja aura handa bændum. En þá fyrirfannst enginn
peningur. Bolsivikar höfðu náð öllu í skip, foáta og gjald-
þrota verksmiðjur. Hermanni leikur nokkur öfund á
sæti Bjama og stakk hann með beittum títuprjónum
út af því, sem hann kallaði svik við bændur. Þá reis
Bjarni til varnar og sagði, sem satt var, að hann hefði
aoallega fyrirfundið skuldir og tóm ílát þar sem hinir
rauðu vinir Hermanns höfðu áður haldizt við. Sagði
hann þá, að lausaskuldir ríkissjóðs og ríkisstofnana
væru farnar að nálgast hundrað milljónir. Var sýni-
legt, að Bjarni og Eysteinn voru mjög aðþrengdir í
'þessu efni. Áttu þeir að vísu lítið gott skilið fyrir úti-