Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 9
ÓFEIGUR
9
meinsemd hinna ótryggu vinnubragða, af ótta við at-
kvæðatap við kosningar. Mbl., Tíminn og Alþýðubl.,
avo og Þjóðviljinn, létust ekki vita um málið. Vísir flutti
mestalla greinargerðina mánuði eftir að tillagan kom
fram, en aldrei minntist blaðið hennar að öðru leyti.
Helgi Hjörvar las meginefnið í útvarpinu. En svo mjög
eru atvinnurekendur og forkólfar stjórnmálanna blind-
aðir af gömlu eftirlæti við kommúnista, að þeir treysta
sér ekki til að ræða málið. Hér er þó meira en saga til
næsta bæjar. Höfuðsmaður kommúnismans, sjálfur Stal-
in, sér að ríki hans getur ekki staðizt með því að draga
hin keyptu vinnubörgð niður í það svað, sem framleið-
endur í vesturlöndum verða að búa við í þessum efn-
um. Þess vegna kastar Stalin sér í faðm hinna miklu
framleiðenda í Ameríku, svo sem Henry Ford, og tek-
ur aðferðir þeirra til fulls í sína þjónustu. Það verð-
ur að teljast frábært sinnuleysi af íslenzkum framleið-
endum, að hafa ekki fylgzt með skipulaginu um ákvæðis-
vinnu í Bandaríkjunum og Stakhanov-hreyfinguna. Áttu
um málið að vera almennar og óhlutdrægar umræður.
Ákvæðisvinnuskipulagið er í einu réttlátt, gott fyrir
bæði verkamenn og vinnukaupendur, framleiðslu lands-
ins og alla þjóðina nema þá, sem vilja svíkjast um og hafa
-of hátt kaup í skjóli duglegri manna. Eftir að tillaga
mín var komin fram í þinginu og nú birt í Ófeigi, er
málið auðsótt, ef dáð og dugur er í leiðtogum atvinnu-
veganna, bæði til lands og sjávar. Þeir eiga að benda
á, að í því eina ríki, þar sem bolsivikar hafa stjórn-
taumana í sínum höndum, hefir komið í Ijós, að ríkið
gat ekki staðizt, nema með því móti að borga hverj-
um manni eftir verkafköstum hans. Stalin, faðir allra
kommúnista, hefir tekið málið í sínar hendur. Hann
fordæmir með gildum rökum að greiða silakeppum
sama kaup eins og vinnugörpunum. I ríki hans eru
meira að segja mjög margir launastigar, sem lagðir
eru til grundvallar eftir því sem nefnd er þýðing starfs-
ins. Ofan á þann mun bætist svo munur á kaupi eftir
•afköstum, miðað við meðaldagsverk. Ef mál þetta
væri sótt með festu og réttlæti, en ekki með löngun til
að gera sumum aðilum hærra undir höfði en öðrum,
mundi vera auðvelt að breyta skipulaginu til betri
vegar á skömmum tíma. Allir duglegir menn græða
á breytingunni, dugnaður vex við öll störf. Silakepp-
2