Ófeigur - 15.08.1948, Qupperneq 16
16
ÓFEIGUR
tektarvert, að síðan tillaga þessi var borin fram í þing-
inu, hafa Norðmenn, Danir og Hollendingar efnt til
heimavarnarliðs af sömu ástæðum og hér koma til
greina. Sama alda gengur yfir öll lönd. Allir óttast ó-
vissa og hættulega atburði. Liðsafii sá, sem Danir ætla
að safna til öryggis innanlands, svarar til 3000 manna.
þjóðliðs á Islandi. Að því er snertir þjóðvörð í lar.di,
þarf ekki að vera um verulegan kostnað að ræða. Æf-
ingarnar yrðu eins konar leikfimi og þeir dagar, sem
liðsafli þessi yrði kvaddur til löggæzlustarfa, yrðu
mjög fáir. Menn, sem stofna til óspekta, eru að öllum
jafnaði úrgangslýður, sem gerist ráðsettur og löghlýð-
inn, þegar löggæzluvaldið er við hendina, í einu rétt-
látt og öflugt. Lítið hefir verið rætt opinberlega um
þetta mál, en í kyrrþey hafa þjóðhollir menn árum
saman haft áhuga fyrir lausn þess. Innlendir og erlend-
ir atburðir munu fyrr en varir knýja þjóðina til að
breyta óskum og vonum í framkvæmdir.
XX.
Sú óhæfa varð heyrinkunn í vetur, að Guðbrandur
Jónsson hefði með leynd og í fullu heimildarleysi graf-
ið upp bein Jóns Arasonar og sona hans, og flutt þau
til Reykjavíkur og ráðstafað þeim eftir geðþótta. Bar
ég þá fram fyrirspurn um málið. Stjórnin mun hafa
gengið að Guðbrandi og krafizt af honum skýringa.
Sá hann þá þann kost vænstan, að játa sekt sína opin-
berlega í blaðagrein. Þóttist hann hafa fengið til verks-
ins heimildir frá ýmsum aðilum, en fáir höfðu heimild
til leyfisveitinga. Allir voru þeir menn fallnir frá, sem
áttu að hafa veitt heimild til þessa fáránlega verks
og ekki voru skrifleg skilríki frá neinum þeirra.
Með sama rétti gæti Guðbrandur brotizt niður í grafir
Matthíasar Jochumssonar og Jóns Sigurðssonar og flutt
burt, til eigin ráðstöfunar, jarðneskar leifar þeirra.
Þetta verk var því verra, þar sem Skagfirðingar höfðu
hætt á meira og framkvæmt jarðarför þeirra Hóla-
feðga með meiri áreynslu og fómfýsi heldur en fram
hefir komið við nokkura aðra jarðarför hér á landi.
Er það nú sammæli allra dugandi manna í Skagafirði,
að ríkisstjórnin verði að bæta úr þessu óhæfuverki og
láta taka bein þau sem Guðbrandur Jónsson hefir
flutt burt frá Hólum og skila þeim heim í rétta gröf.