Ófeigur - 15.08.1948, Qupperneq 22
uðið, meðan þeir eru að störfum í bænum. Sama er
raunin með gistihússbyggingu í Reykjavík. Jóhannes
Jósefsson reisti Hótel Borg 1930, en síðan þá hefir
enginn komzt í spor hans. Sýnilegt er, að ekkert verð-
ur úr þríveldahótelinu, þar sem í átti að nota síðasta
stríðsgróðann. Hér er lagt til að leysa gistihúsmálið
og vandkvæði aðkomuþingmanna, með því að freista
að ná samkomulagi við Jóh. Jósefsson um að ríkið leggi
veitingaskattinn frá þessu gistihúsi um tveggja ára
skeið, sem fast, vaxtaberandi lán, í viðbótarbyggingu
til að auka 30 herbergjum við gistihúsið, en láta þau
skilyrði fylgja, að þingmenn sitji þar fyrir herbergj-
um, sem miðuð eru við þeirra þarfir. Engin önnur, við-
hlítandi tillaga hefir komið fram um þetta mál. Ef ut-
anbæjarþingmenn bera ekki gæfu til að taka hug-
myndina í sína þjónustu, má segja, að þeir eigi skilið
að vera framvegis útlagar í höfuðborginni.
XXVI.
Fyrirspurn þessi kom fram skömmu fyrir þingslit
og var ekki tekin til meðferðar. Hér er spurt um tvö
vandræðamál þings og stjórnar. Templarar réðust í
að bjóða fyrrverandi ríkisstjórnum að stofna og starf-
rækja á landsins kostnað hæli fyrir áfengissjúklinga
í hálfbyggðu húsi hjá Stokkseyri. Fengu þeir til þess
allmikið fé, en starfrækslan gekk illa og þótti ekki við-
hlítandi. Landlæknir mun þá hafa ætlað að bjarga mál-
inu og fékk í lið með sér Helga Tómasson á Kleppi.
Fengu þeir stórmikið fé hjá einhverjum ráðherrum
og fluttu nú áfengissjúklingana að Kaldaðarnesi og
gerðu þar húsabætur fyrir 730 þús. kr. Byrjuðu þeir þar
lækningastarfssemi sína, fengu fáa sjúklinga en höfðu
mikinn tilkostnað. Ekki var mikið um aðhald eða aga
hjá læknunum og fóru sjúklingar mjög sínu fram. Þeir
komu og fóru af staðnum eins og hér væri um gisti-
húsveru að ræða, en ekki sjúkrahúsvist. Stundum gerðu
sjúklingamir verkfall, vildu ekki draga sig að matn-
um, en heimtuðu hinsvegar Dagsbrúnarkaup fyrir vinnu
sína. Tilkostnaðurinn á hvem sjúkling varð um og yfir
20 þús. árlangt. Ég kom í Kaldaðarnes á slætti í fyrra.
Var þá einn sjúklingur að dunda við vinnu í verkstæð-
inu, en annar spígsporaði um hlaðið, búinn líkt og vel