Ófeigur - 15.08.1948, Page 31
ÖFEIGUR
31
XXXIH.
Hér verður ennfremur minnzt á nokkrar aðrar vakn-
ingartillögur frá síðustu rnissirum. Hafa sumar þeirra
verið birtar í Ófeigi, en hafa því meir, sem tímar líða,
aukið málefnagildi, í svefni yfirstandandi tíma. Heims-
kringla Snorra Sturlusonar hafði ekki verið gefin út
fyrir almenning hér á landi, fyrr en alþingi samþykkti
tillögu frá mér um 60 þús. kr. framlag úr ríkissjóði til
þjóðarútgáfunnar, ef hún vildi koma þessu alfrægasta
riti Islendinga inn á svo að segja hvert heimili á land-
inu. Þetta lánaðist. Síðasta bindið kemur út í haust.
Vanrækslubletturinn í sambandi við viðurkenningu
Snorra er nú afmáður. Þegar Sigurður Guðmundsson
sótti fast á, að koma upp myndarlegri heimavist á Ak-
ureyri, bar ég fram tillögu um að ein milljón yrði veitt
til þeirrar framkvæmdar. Þetta fé hefir verið heimilað
á tveim árum og er húsið nú á góðri leið. Það verður
stærsta heimavist á landinu og kemur væntanlega að
góðu haldi í framtíðinni, sem sumargistihús vegna er-
lendra ferðamanna. Þegar Pálmi Loftsson hafði keypt
með reyfarakjörum þrjá ágæta hraðbáta í Englandi
til landhelgisgæzlu, gerðu eigendur skipa og báta, sem
byggja atvinnu sína á ólöglegum veiðum í landhelgi mik-
ið hark og sögðu bátana óhæfa fyrir íslendinga, því að
þeir sæktu á að velta meira á sjó heldur en hentaði
íslenzkum sjómönnum. Lagði ég þá til, að í bili væru
fengnir enskir sjómenn til að kenna íslendingum að
nota þessi tæki. Hraðbátar eru notaðir um allan heim.
Hafa Norðmenn og Danir komið upp hraðbátaflota
til landhelgisgæzlu um ieið og íslenzka ríkisstjórnin skil-
aði sínum nýfengnu bátum. Hið sanna var, að eigend-
um togara og dragnótabáta þýddi ekki að fara í land-
helgina, ef hraðbátar voru við gæzlu. Tók einn hrað-
báturinn togara við Öndverðarnes, þann stutta tíma
sem bátar þessir fengu leyfi til að starfa hér. En þeim
var skilað, og þar með var landhelgin dæmd til eyði-
leggingar af skammsýnum börnum sjálfrar þjóðarinn-
ar. Þegar sýnilegt var, að Brynjólfur Bjarnason mundi
leggja stund á að binda börn og unglinga við samfellt
bóknám frá sjö til seytján ára aldurs og knýja fólk í
sveitum til að láta börnin vera langvistum hjá fram-
andi fólki og svift stuðningi og vernd foreldranna, bar
ég fram tillögu um að sett væri ný nefnd til að færa