Ófeigur - 15.08.1948, Síða 31

Ófeigur - 15.08.1948, Síða 31
ÖFEIGUR 31 XXXIH. Hér verður ennfremur minnzt á nokkrar aðrar vakn- ingartillögur frá síðustu rnissirum. Hafa sumar þeirra verið birtar í Ófeigi, en hafa því meir, sem tímar líða, aukið málefnagildi, í svefni yfirstandandi tíma. Heims- kringla Snorra Sturlusonar hafði ekki verið gefin út fyrir almenning hér á landi, fyrr en alþingi samþykkti tillögu frá mér um 60 þús. kr. framlag úr ríkissjóði til þjóðarútgáfunnar, ef hún vildi koma þessu alfrægasta riti Islendinga inn á svo að segja hvert heimili á land- inu. Þetta lánaðist. Síðasta bindið kemur út í haust. Vanrækslubletturinn í sambandi við viðurkenningu Snorra er nú afmáður. Þegar Sigurður Guðmundsson sótti fast á, að koma upp myndarlegri heimavist á Ak- ureyri, bar ég fram tillögu um að ein milljón yrði veitt til þeirrar framkvæmdar. Þetta fé hefir verið heimilað á tveim árum og er húsið nú á góðri leið. Það verður stærsta heimavist á landinu og kemur væntanlega að góðu haldi í framtíðinni, sem sumargistihús vegna er- lendra ferðamanna. Þegar Pálmi Loftsson hafði keypt með reyfarakjörum þrjá ágæta hraðbáta í Englandi til landhelgisgæzlu, gerðu eigendur skipa og báta, sem byggja atvinnu sína á ólöglegum veiðum í landhelgi mik- ið hark og sögðu bátana óhæfa fyrir íslendinga, því að þeir sæktu á að velta meira á sjó heldur en hentaði íslenzkum sjómönnum. Lagði ég þá til, að í bili væru fengnir enskir sjómenn til að kenna íslendingum að nota þessi tæki. Hraðbátar eru notaðir um allan heim. Hafa Norðmenn og Danir komið upp hraðbátaflota til landhelgisgæzlu um ieið og íslenzka ríkisstjórnin skil- aði sínum nýfengnu bátum. Hið sanna var, að eigend- um togara og dragnótabáta þýddi ekki að fara í land- helgina, ef hraðbátar voru við gæzlu. Tók einn hrað- báturinn togara við Öndverðarnes, þann stutta tíma sem bátar þessir fengu leyfi til að starfa hér. En þeim var skilað, og þar með var landhelgin dæmd til eyði- leggingar af skammsýnum börnum sjálfrar þjóðarinn- ar. Þegar sýnilegt var, að Brynjólfur Bjarnason mundi leggja stund á að binda börn og unglinga við samfellt bóknám frá sjö til seytján ára aldurs og knýja fólk í sveitum til að láta börnin vera langvistum hjá fram- andi fólki og svift stuðningi og vernd foreldranna, bar ég fram tillögu um að sett væri ný nefnd til að færa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.