Ófeigur - 15.08.1948, Side 53

Ófeigur - 15.08.1948, Side 53
ÓFEIGUR 53 Evrópuþjóðir. Bandaríkjamenn unna landi sínu og þeim miklu skilyrðum, sem þar eru til fjársöfnunar og at- hafna. Hafa þeir enga þörf til að leggja undir sig ný lönd. Þegar Bandaríkin höfðu verið lýðveldi í einn mannsaldur, þótti ástæða til að ætla, að nokkur Evrópu- ríki, sem stýrt var af afturhaldsforkólfum, mundu freista að leggja undir sig sum hin mannfáu en auðugu lönd í Mið- og Suður-Ameríku. Það þóttust Banda- ríkin sjá, að ef þetta tækist, gætu stórveldi í Evrópu haft liðsöfnuð í þessum nýlendum og snúið vopnum sínum þaðan móti Bandaríkjaþjóðinni. Þá gerðist sá atburður í Bandaríkjunum, árið 1823, að Monroe for- seti lýsti yfir, með stuðningi Bretastjórnar, að Banda- ríkin mundu ekki þola neinni framandi þjóð að leggja undir sig lönd eða ríki í Ameríku. Er þetta hin nafn- togaða Monroe-kenning, sem hefur verið nefnd hlífi- skjöldur allra smáríkja í Ameríku í meira en 120 ár. 1 skjóli við þessa yfirlýsingu Bandaríkjanna treystu þjóðirnar í Mið- og Suður-Ameríku skipulag sitt sem óháð lýðveldi. Hefur engin Evrópuþjóð treyst sér til að ráðast á lýðveldin í Ameríku síðan Monroe-vernd- in hófst, ef frá er talin vanmáttug tilraun Napóleons IH. að ná fótfestu í Mexico, en sú tilraun endaði með miklum ósigri innrásarhersins. Laust fyrir síðustu alda- mót björguðu Bandaríkin Kúbu og Filippseyjum und- an blóðugri harðstjórn Spánverja og hafa alið þessar þjóðir upp til að geta orðið sjálfstæðar undir vernd Monroe-stefnunnar. Er það skemmst af að segja, að þó að leitað sé vandlega um endilöng spjöld mannkyns- sögunnar, þá eru þess engin dæmi fyrr en Bandaríkin komu til sögunnar, að stór og voldug þjóð hafi tekið að sér að vernda frelsi og sjálfstæði fjölmargra smá- ríkja, án þess að gera þetta vald að kúgunarbandi. Jóni Sigurðssyni taldist svo til, að Danir hefðu grætt allt að 600% á því að selja íslendingum aðflutta vöru og kaupa alla framleiðslu landsmanna. Mun þakkláts- semin fyrir vernd Dana á liðnum öldum hafa knúið allmarga Islendinga, einkum þá, sem lengi höfðu búið í Danmörku, til að beita sér móti lýðveldisstofnun- inni. En allmargir af þessum sömu mönnum hafa nú snúizt til andstöðu gegn því, að Islendingar tryggi sér vernd þeirrar einu stórþjóðar, sem svo er sett og hefur það skipulag, að hún misnotar ekki styrk sinn til land-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.