Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 61
ÓFEIGUR
61
skapur, en ekki bundinn við aðstöðu einstaklinga, held-
ur á vegum mannfélagsins. Þess vegna legg ég til, að
sett verði sérstök stjórnarnefnd fyrir Skálholt: Tveir
forgöngumenn kirkjunnar, yfirmaður búnaðarmála og
helztu kunnáttumenn landsins í húsagerð og fomum
fræðurn. Slík nefnd ætti að hafa góða aðstöðu til að
endurreisa þennan fornfræga stað með þeim hætti, að
sæmd landsins væri að fullu borgið. Slíkar nefndir
starfa bezt, ef þær eru ólaunaðar. Veit ég þetta af
reynslu í hátíðamefndinni 1930, Þingvallanefnd, dansk-
isíenzku nefndinni, Snorranefndinni og byggingarnefnd
Þjóðleikhússins, til að nefna nokkur dæmi.
Endurreisn Skálholts þarf að hefjast á vettvangi
kirkjumálanna. Þar ætti að gera við kirkjugarðinn með
sama einfaldleika og beitt var við þjóðargrafreitinn á
Þingvöllum. Næst ætti, haustið 1950, að reisa á dánar-
.stað Jóns Arasonar hið snilldarlega minnismerki Ein-
ars Jónssonar. Vafasamt er, að heppilegt verði að freista
að endurreisa timburkirkju Brynjólfs biskups. Brana-
hættan er of mikil. Betra mundi að reisa í Skálholti
fallega kapellu í rómönskum eða gotneskum stíl. Sá
prestur, sem messar í Skálholti, ætti fortakslaust að
eiga þar heima, og er furðulegt, að svo skuli ekki vera.
Þá ætti biskup landsins að hafa þar sumarhús og taka
þar á móti tignum gestum. Vel færi á, að guðfræðinem-
ar þjóðkirkjunnar gætu verið þar á vorin og undir-
búið próf sín á þeim sögufræga stað. Þá hafa margir
prestar hreyft þeirri tilllögu, að í Skálholti væri hvíld-
arheimili presta, bæði ungra og gamalla. Með þessu
móti væri Skálholt aftur tengt kirkjunni og að nokkm
efnt heit við hinn fræga gefanda, Isleif biskup.
Biskuparnir höfðu að öllum jafnaði stórbú í Skál-
holti, og svo þarf enn að vera. Þar ætti að vera fyrir-
myndarbú og túnrækt mikil. Það er lítt afsakanlegt
hirðuleysi, að ekki skuli vera til hér á landi stórbú,
þar sem ræktuð eru hin beztu kyn nautpenings og
hesta. Skálholt er einkar vel fallinn staður fyrir slíka
starfsemi, heimalönd víðáttumikil og ræktarland óþrjót-
andi. Þegar lokið er brúargerð á Iðu, geta sunnlenzkir
bændur átt auðvelda sókn að Skálholti og fengið þar
hin beztu húsdýrakyn.