Ófeigur - 15.08.1948, Síða 62
62
ÓFEIGUR
VI. Skáld og listamenn.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjómina að flytja
á þessu þingi frv. um framtíðarskipulag á námsstyrkj-
um og heiðurslaunum skálda og listamanna. Skai fr\T._
byggt á eftirfarandi stefnuatriðum:
1. Að Alþingi hafi jafnan átta skáld eða listamenn
á hálfum launum háskólakennara í Reykjavík. Sá,
sem eitt sinn hefur fengið þessi heiðurslaun, held-
ur þeim ævilangt, en enginn má fá þessi laun, nema
hann sé minnst 45 ára að aldri. Heiðurslaununum
úthlutar landsnefnd, og skal einn fulltrúi kosinn af
hverri sýslunefnd og bæjarstjóm í landinu.
2. Að Alþingi veiti árlega jafnháa fjárhæð í náms-
styrki handa átta skáldum og listamönnum. Mennta-
málaráð úthlutar þessum styrkjum árlega. Enginn
má fá þennan styrk oftar en þrem sinnum.
Greinargerð : Fyrri nálega 60 árum lagði Al-
þingi út í það stórræði að veita einu skáldi heiðurslaun
á fjárlögum. Sá, sem fyrir þeim heiðri varð, var sr.
Matthías Jochumsson. Hann mun þá hafa verið hálf-
sextugur og hafði verið þjóðskáld, frá því að hann var
nemandi í latínskólanum. Var hér ekki rasað fyrir ráð
fram. Bændur í Skagafirði áttu frumkvæði að þessu
nýmæli. Leið svo fram um aldamót. Þá komu til sög-
unnar þrjú skáid: Þorsteinn Erlingsson, Einar Kvar-
an og Jón Trausti. Var um alllanga stund þrálát bar-
átta á þingi um verðleika þessara skálda, og mun þeim
hafa þótt slíkt mat og endurmat á gildi þeirra fremur
óskemmtilegt ævintýri. Þessum deilum lauk á þann
hátt, að þremenningamir hélau fenginni viðurkenningu.
Eftir fyrra stríðið fjölgaði smátt og smátt í þessari
fylkingu, og er nú svo komið, að á annað hundrað
manna nýtur mismunandi hárra launa úr ríkissjóði
fyrir að iðka skáldskap eða listir. Má segja, að þar sé
misjafn sauður í mörgu fé. Þar eru nokkrir mjög merk-
ir andans menn, en mikill meiri hluti þeirra, sem nú
hafa fengið þessi ríkislaun, eru ekki í neinum sýnileg-
um kynnum við lista- eða skáldagyðjuna. Kommúnista-
flokkurinn hefur gengið mjög langt í að koma sínum.
flokksmönnum á framfæri í þessum efnum. En fleiiji
eru án sýnilegra verðleika á þessum launalista en þeir,
sem kommúnistar hafa lagt til, þó að kommúnistar hafi