Ófeigur - 15.08.1948, Síða 94
94
ÓFEIGUR
að halda við hreyfanleika stofnunarinnar. Með því að
stækka Hótel Borg um 30 herbergi, er hægt um vik
að taka frá á tiltekinni hæð herbergi, sem þingmenn
eiga rétt á meðan þing starfar. Þau gætu á ýmsan hátt
að húsbúnaði verið sniðin efti þörfum þingmanna. Þeim
gæti fylgt setustofa, sem þingmenn einir ættu aðgang
að, o. s. frv.
Ég hygg, að með tillögu þeirri, sem hér er borin
fram, sé bent á einu færu leiðina til að tryggja Reykja-
vík viðunandi umbót á hótelmáium borgarinnar og utan-
bæjarþingmönnum vetursetustað, meðan Alþingi starf-
ar, þar sem þeir njóta aðbúðar, sem gerir þeim 'fært
að vinna að mikilvægu verki.
Hvað snertir aðstöðu Jóhannesar Jósefssonar, hef
ég ekkert umboð frá honiun til að hreyfa þessu máli.
En mér var kunnugt um, þegar hann byggði gisti-
húsið, að hann hefði mikinn hug á að bæta við norður-
álmu, en þá skorti hann og ríkið þann fjárstyrk, sem
með þurfti. Mér þykir sennilegt, að hann muni enn hafa
löngun til að ljúka þessu verki, en reynslan mun hafa
kennt honum, eins og öðrum samborgurum hans, að
nú er ekki álitleg atvinna að reisa gistihús án samstarfs
við það mannfélag, sem þarfnast sérlega þess háttar
framkvæmda. Með þessari tillögu vil ég benda þingi
og stjórn á leið, sem að líkindum er fær, til að hér starfi
tiltölulega gott hótel og utanbæjarþingmenn finni, að
þeir hafa í Reykjavík fast land undir fótum, engu síð-
ur en stallbræður þeirra, sem heima eiga í bænum.
XXVI. ÐrykSíjumaisiiaheimili og Skálholtsskóli.
1. Hælið í Kumbaravogi:
a. Hver var stofnkostnaður, að því er snertir fast-
eignir og áhöld?
b. Hve margir sjúklingar komu á hælið til vistar,
og hver var dagkostnaður á mann?
c. Hvaða nefnd og forstöðumenn stýrðu hælinu?
d. Hvað hefur ríkið fengið fyrir framlagðan kostn-
að sinn í Kumbaravogi?
2. Hælið í Kaldaðarnesi:
a. Hve mikið greiddi ríkið fyrir Kaldaðames?
b. Hve mikið hafa Bretar greitt fyrir afnot og
skemmdir á jörðinni?