Studia Islandica - 01.06.1981, Side 88
86
og er hluti af ritinu Morálium dogma philosophorum,
sem Hauksbók og ýmsar heimildir aðrar eigna Philippus
Gualterus, þótt vafasamt sé nú talið að hann sé höfundur.5
Bæði þessi rit eru mjög í anda húmanisma, þótt guðfræði-
leg séu öðrum þræði. Ein af sameiginlegum hugmyndum
þeirra er sú, að sífellt sé verið að reyna manninn og skipti
þá engu síður máli, hvernig brugðizt er við eldraunum en
hvað maður er látinn þola. Rit Húgós (Hauksbók, 315)
segir að ekki skuli hryggjast yfir því þótt góðir menn og
illir séu í einu samneyti „þ-ví at góðir menn eru þér til
hugganar, illir til frama, hvárirtveggju til hata. Tekr þú
af inum góða dœmi til góðra verka; þú leitar ok við at
gera inn vánda at góðum manni ok tekr af inum illa viðr-
sjá illra verka. Ok hefir guð fyrir þvi qIIu þessu snúit þér
til hjálpa, því ef þú líkisk inum góða, þat er þitt gagn,
svá ef þú firrisk inn illa af illum dœmum; bœtir þú ok
inn vánda, þá snýsk þat þér til hjálpa. Aldri veitir guð
vald inum vánda útan góðum mQnnum til nytja. Ok því
þolir guð vándra manna framgang ok ofríki, at á bar-
dagadegi verðr reynt hverir guðs vinir eru. En hversu
reynask berserkir eða kappar, ef engi býðr þeim hólm-
gQngu? Nær reynir jarðligr konungr hirð sína útan þá
er óvinir ganga á ríki hans? Nær gefr ok guð meira raun-
arefni vinum sínum en þá er fjándr vilja fyrirkoma sœmð-
um hans? Raun skal vin prófa.6 Sá er sannr vin er í nauð-
5 Upphafsorð ViSrœSu bera það glöggt með sér, að skrifari Hauks-
bókar hefur talið Philippus Gualterus vera höfundinn: „Bók þessa
gerði meistari Valtír . . . “ En þótt honum sé eignað Morálium
dogma philosophorum í ýmsum heimildum fyrri alda, þykir nú
ósennilegt, að ritið sé eftir hann. Sbr. Marvin L. Colker, Galteri
de Castellione Alexandreis (Padova 1978), bls. v og rit sem þar er
vitnað til.
6 Hér má minna á málsháttinn „Sá er vinur, sem í raun reynist" i
nútímamáli og spakmælið „Lengi skal manninn reyna“ í Grettlu.
Þrjú spakmæli í Disciplina clericalis eftir tólftu aldar Spánverj-