Rökkur - 01.03.1931, Side 6

Rökkur - 01.03.1931, Side 6
4 R Ö K K U R í'lugmaður og þaulvanur blind- flugi. — I sumar hefir verið flogið þrisvar yfir Atlantshaf (í flugvélum). Kingsford Smitli liinn ástralski flaug frá Port Maruock í írlandi til New York í júní (Southern Cross flugið) og Costes og Bellonte flugu frá Le Bourgetflugstöðinni við París í september til New York (Question Mark flugið). Boyd og Connor lentu í Tresco þ. 10. okt., og liefir ahlrei verið flog- ið yfir Atlantshaf svo síðla sumars áður. — Auk framan- greindra flugmanna flaug von Gronau vestur um liaf til Vest- urheims í sumar, en fór ekki í einni lotu yfir hafið, sem kunn- ugt er, heldur um Færeyjar, Island og Grænland, og þótti það frækilegt flug, en liér að framan er átt við flug án við- komu á aðalleiðinni, og er það því ekki þar talið. Frá Rúmeníu. Maniu-stjórnin beiddist jlausn- ar þ. 6. október, eins ogi hermt var i skeytum til blaöanna. Carol kon- ungur tók lausnarbeiðnina til greina. Tilkynt var jafnframt að orsökin til lausnarbeiðninnar væri sú, aö Maniu forsætisráöherra ætti viö lasleika aö stríöa, en þatS var ekkert leyndarmál, að Carol og Maniu greindi á um mikils- verö mál, enda þótt Carol ætti Maniu þaö aö þakka, iaö hann fékk heimfararteyfi og varö kon- ungur Rúmena. Eins og kunnugt er skildi hann viö konu sína, Hel- enu Grikklandsprinsessu, er hann var krónprins, og bjó síðan er- lendis með konu að nafni Mme Lupescu, lengst af í Paris. En Michael, sonur Carols og Helen- ai, hlaut konungstitilinn. Þegar loks skipaðist svo málum, að Car- ol fékk heimfararleyfi og varð konungur, var talið víst, að hann myndi sættast við Helenu. En ekki verður séð, að fullar sættir hafi tekist með þeim enn. Er af sum- um blöðum talið, að lausnarbeiðni Maniu standi í sambandi við ágreining milli hans og Carols um krýningu Carols til konungs. Mun Maniu ekki hafa þótt ráðlegt að Carol yrði krýndur til konungs, nema Heletia yrði krýnd um leið. En auk þess samdi Maniu og Manoilescu, samgöngumálaráð- herranum, löngum illa. Er sam- göngumálaráðherrann vildarvinur Carols konungs. —■ Hinsvegar er Maniuflokkurinn (bændafl.) öfl- ugasti flokkurinn í landinu og eng- ar líkur til annars en að hann verði mestu ráðandi í landinu í náinni framtíð. En framtíðar- horfurnar eru ekki sem bestar í Rúmeníu, því þar eru kreppu- tímar miklir, og auk þess efast margir mætir menn þar í landi

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.