Rökkur - 01.03.1931, Qupperneq 26
24
RÖKKUR
dauðsfalla. í Öldungadeildinni
eiga ini sæti 59 republikanar,
þar á meðal nokkurir svo kall-
aðir progressive republicans,
39 demókratar og 1 fulltrúi
bænda og verkamanna (Far-
mer-Labourite). Benda allar
likur til þess, að demokratar
muni auka mjög fulltrúatölu
sína í Öidungadeildinni, og
telja báðir flokkar það víst.
Sumir leiðtogar republikana
liafa jafnvel gert ráð fyrir, að
demokratar bæti þar við sig
alt að 30 þingsætum. En þó nú
að svo færi ekki og republik-
anar béldu meiri bluta Öld-
ungadeildarinnar, þá ber þess
að geta, að margir hinna svo
kölluðu progressive rej)id)Iic-
ans bafa hvað eftir annað —
og stundum í mikilvægum mál-
um — greitt atkvæði með
demókrötum. Þeir liafa í raun-
inni stundum komið fram sem
nokkurskonar þversumflokk-
ur, sem hafði ráð deildarinnar
í hendi sér. Yrði margir hinna
forsetatryggu republikana að
víkja fyrir demókrötum, verð-
ur stjórninni auðvitað erfitt um
vik á marga lund. Hún gæti þá
ekki komið áhugamálum sín-
um í gegnum þingið, nema
þeim, sem demokratar setja
velþóknunarstimpil sinn á.
Kosningabaráttan í ríkinu Ne-
braska vekur þjóðarathygli.
Þar er Öldungadeildarþing-
maðurinn George W. Norris i
kjöri, leiðtogi progressive repu-
blicans, en keppinautur lians er
Gilbert M. Hitchcock, fyrrver-
andi öldungadeildar þingmað-
ur og framsögumaður demo-
krata i Öldungadeildinni á
tímabili Wilsons. — Kosninga-
baráttan í New Jersey vekur
sömuleiðis mikla athygli. Þar
er Dwight W. Morrow, fyrrver-
andi sendilierra Bandaríkj-
anna i Mexíkó í kjöri af hálfu
repúblikan’a. Keppinautur bans
er Alexander Simpson, demó-
krati. Ynni Morrow glæsilega
verður liann ef til vill fram-
bjóðandi republikana i næstu
forsetakosningum. Þess ber þó
að geta, að Morrow liefir lýst
því yfir, að hann gefi ekki kost
á sér sem forsetaefni, nema
Hoover kjósi að draga sig í hlé.
Loks mætti geta þess, að bann-
málið hefir verið mjög á dag-
skrá vestra í kosningahríðinni.
Búast margir við, að andbann-
ingum á þjóðþinginu muni
mjög fjölga, og eru til þess
nokkrar líkur, þó að líkurnar
séu hins vegar ekki þær, að
fvlgisaukningin verði það mik-
il, að leiða muni til víðtækra
bannlagabreytinga nú.
II.
Eins og kunnugt er orðið af