Rökkur - 01.03.1931, Side 19
R Ö Ií K U R
17
áttina til ljóssins, lýst af jafn
brennheitri trú á sigur liins
góða yfir hinu illa og af eins
lýsandi liugsjónum, og Einar
Jónsson gerir í listaverkum
sínum.“ Ummælin eru nokkru
lengri, en hér verður staðar að
nema, þvi þetta er orðið lengia
mál en til var ætlast.
Grein Felix Nörgaard ber
það með sér, að fyrir áhrif ís-
lenskra lista hefir hann öðlast
þann skilning á landi voru og
þjóð, sem svo raunalega marga
samlanda hans skortir. Og það
er kannske ekki úr vegi að
minnast á það að lokum, að
einmitt listaverk okkar mestu
manna, hvort sem þeir eru
myndhöggvarar, málarar eða
skáld, eru þeir töfragripir, sem
bera birtu skilningsins yfir
þjóðlífið. Mun það betur i ljós
koma, er listaverk snillinga
vorra verða kunnari erlendis.
Að því þarf að vinna. Vísir bef-
ir tvivegis bent málurum vor-
um á að sýna listaverk sín í
höfuðborg heimsins, Lundúna-
borg. Einn listamanna vorra
hefir þar riðið á vaðið með góð-
um árangri. Þar eiga fleiri eftir
að fara.
Landbúnaður og atvinnuleysi-
Tillögur David Llovd George,
aðalleiðtoga frjálslynda flokks-
ins breska, til að ráða bót á at-
vinnulevsinu, liafa verið birt-
ar, en höfðu áður verið rædd-
ar á fundum ríkisstjórnar-
innar. Frjálslyndi flokkurinp
liafði lagt það til, að varið væri
£145,000,000 til vegagerða og
vegabóta á tveimur árum, en
stjórnin kvað hafa fallist á að
verja £101,000,000 í þessu
skyni, en á fimm árum í stað
tveggja. Merkasta tillagan, sem
Lloyd George hefir komið fram
með er ef til vill sú, að stjórnin
útvegi sér lönd til ræktunar,
undirbúi þau, og stofni 100,000
fjölskyldubýli (family farms),
til þess að draga úr atvinnuleys-
ismeininu. Jarðirnar, sem gert
er ráð fyrir, að fjölskyldurnar
fái til afnota, verði 3—100 ekr-
ur að stærð (ekra = 4046 fer-
metrar). Mun vera gert ráð
fyrir, að minstu jarðirnar verði
ætlaðar þeim, sem vilja leggja
aðaláherslu á alifuglarækt.
Enfnremur vill L. G. gera lil
raunir til þess að lækka fram-
leiðslukostnaðinn og hyggur, að
það sé hægt að lækka liann um
10%, án þess að laun lækki.
Ríkisútgjöldin hyggur hann og
að hægt sé að minka að mikl-
um mun. Vill hann láta minka
ríkisútgjöldin um 10% á miss-
eri og skipa sérstaka nefnd til
að vinna að þvi. Lögin um
tryggingu gegn atvinnuleysi