Rökkur - 01.03.1931, Qupperneq 74
72
R Ö K K U R
ar fóru fram í leikhúsunum. Verka-
menn og aðrir hópuðust saman á
götunum í þúsundatali og sumstaðar
lenti í skærum við lögregluna. Alls-
herjarverkfallið var háð í samúðar-
skyni við hafnarverkamenn, sem
kröfðust hærri launa. A. m. k. 5
menn biðu bana, en 40 særðust. Fé-
lagið „Sindicate Unico" átti frurn-
kvæðið að verkfallinu. Meðlimir
þessa félags í Kataloníu eru taldir
vera 200.000. Félagið var upphaf-
lega viðskiftafélag, en síðan 1923
hefir það haft á stefnuskrá sinni
að koma á sjálfstjórn í fylkinu.
Þegar Primo de Rivera var við
völd, lét hann handtaka hvern leið-
toga félagsins á 'fætur öðrum, og
gerði þeim alt til miska, sem hann
gat. Síðan Rivera fór frá, hefir
„Sindicate Unico“ eflst mjög, en
íélagið hefir ekki enn tekið afstöðu
til lýðveldismálsins, sem rætt er um
allan Spán. Er alment álitið, að Al-
fons sé mjög valtur í sessi, og að
lýðveldi verði stofnað, þegar hann
verður flæmdur frá völdum. Stú-
dentar í Sevilla brutust inn í há-
skólasalinn þ. 19. nóv. og brendu
þar mynd af Alfonso konungi. Báru
stúdentarnir kommúnistaflögg. V oru
þeir reknir út, án þess að til blóðs-
úthellinga kæmi. —
Samkvæmt fregnum, sem hing-
aS bárust eftir að framanskráð
var skrifað, var uppreistartilraun
hafin, en vegna skorts á samheldni
meSal uppreistarmanna og óein-
ingar um mark, fór alt út um þúf-
ur. Berenguer er því enn viS völd.
Lanilskjálftariiir I Japan
þ. 25. ■ nóv. s.l. eru rnestu land-
skjálftar, sem komiS hafa þar i
landi um langt skeiS, aS undan-
teknum landskjálftunum miklu
áriS 1923. Eins og kunnugt er, þá
hafa landskjálftar oft gert feikna
mikiS tjón í Japan og þeir eru þar
mjög tíSir. Mestu tjóni olli land-
skjálftinn á Idzuskaganum, í 60
enskra mílna fjarlægS frá Tokio.
Fjöldi þorpa hrundi í rústir, 233
menn biSu bana, 117 meiddust al-
varlega, en mikill fjöldi manna
hlaut lítils háttar meiSsli. Eigna-
tjón er áætlað nokkrar miljón-
ir króna. Tæplega sjö hundr-
uð byggingar eyðilögðust ger-
samlega, en fjögur þúsund hús
skemdust aS einhverju leyti. Lög-
reglulið og flugliSið fór þegar á
vettvang. FlogiS var yfir land-
skjálftasvæSiS til þess aS fá þeg-
ar glögga hugmynd um ástandiS,
svo aS hægt væri aS bregSa sem
fljótast viS til hjálpar, þar sem
þörfin var mest. Tilkyntu flug-
mennirnir aS afloknu fyrsta eftir-
litsflugi sínu, aS fjöldi bygginga