Rökkur - 01.03.1931, Qupperneq 41
R O K K U R
39
umboðsmaður Bandaríkja-
stjórnarinnar í Colorado hefði
ásakað stjórnina um, að hún
hefði látið af hendi og leigt
ólöglega mikið af olíuauðugum
löndum í Colorado. Birti Kelly
ásakanir sinar í blaðinu New
York World, sem er eitt af
kunnustu blöðum Bandaríkj-
anna. Innanríkismálaráðherr-
ann, Wilbur, varð að láta hefja
yfirgripsmikla rannsókn, því
að öll blöð Bandarikjanna
ræddu um ásakanir Kelly’s.
Rannsókn stjórnarinnar leiddi
í Ijós, að ásakanir Kell’y’s höfðu
við ekkert að styðjast.
Kosningar
í New South Wales
i Ástralíu fóru fram í október-
lok. Jafnaðarmenn unnu glæsi-
legan. sigur, komu að 53 fram-
bjóðöndum, en stjórnarliðar að-
eins 34. Alls greiddn 1 miljón
kjósanda atkvæði. Kommúnist-
ar fengu aðeins 9000 atkvæði.
Verkalýðsleiðtoginn Mr. Lang
myndaði stjórn. Komst hann
svo að orði, er úrslitin voru
kunn orðin, að þau væri sönnun
þess, að Ástralíubúar ætluðu
ekki að þola afskifti annara um
sin eigin mál. Mr. Lang hefir
áður verið stjórnarforseti í
New South Wales.
Byfreiðaslys í U. 8. A.
Arið 1929 hiðu 29,531 maður
bana i Bandaríkjunum af völd-
um bifreiðaslysa eða 25,4 af
hverjum 100,000 íbúum lands-
ins.
Glæpaöldin í U. 8. A.
er síður en svo í rénun. Sam-
kvæmt skýrslum rannsóknar-
stofu dómsmálaráðuneytisins í
Washington voru fimm morð
framin á dag að meðaltali i
amerískum borgum, sem hafa
100,000 íbúa og fleiri, frá ára-
mótum til 1. nóv. þ. á.. Rann-
sóknin fór fram í 58 borgum.
Hið eftirtektarverðasta við
skýrslurnar er þó það, að í
fyrra voru framin 3 morð á
dag að meðaltali í þessum
borgum og er jjví morðaukn-
ingin gífurleg — og skýrslurn-
ar bera það ennfremur með sér,
að bvers konar glæpir eru að
aukast. í New York voru fram-
in 282 morð í fyrra, en í Chi-
cago enn fleiri. Chicago, New
York, Detroit, Los Angelos og
Cleveland eru verstu glæpa-
borgir i Bandaríkjunum, enda
mannflestar.