Rökkur - 01.03.1931, Qupperneq 15
R O K K U R
13
II“-flugvél, smíðuð af De Hav-
illand Companj7.
Suður'AfríkU'flug.
Ungur Suður-Afríkubúi, F.
Caspareuthus fluglautinant, —
flaug i október frá London til
Cape Town í Suður-Afríku á níu
dögum. Er það met. Hann lenti
i Cape Town þ. 13. okt. Hann
flaug í lítilli flugvél (Puss Moth
flugvél) og var einn síns liðs.
Hraðasta flug, sem áður hefir
verið flogið, frá London til Cape
Town, stóð yfir í 10 daga (flug
hertogafrúarinnar af Bedford).
Indlandsmála'ráðstefnan.
Fulltrúar Bretlands á Ind-
landsmálaráðstefnunni liafa nú
loks verið útnefndir: Bamsay
MacDonald, forseti ráðstefn-
unnar, Sanke}r lávarður, forseti
efri málstofunnar, Wedgwood
Benn, ráðherra Indlandsmála,
Henderson, utanríkismálaráð-
herra og J. II. Thomas, ráð-
herra sjálfstjórnarnýlendnanna.
Fulltrúar ihaldsflokksins á ráð-
stefnunni verða: Peel jarl,
fyrrverandi ráðherra Indlands-
mála, Sir Samuel Hoare, mark-
greifinn af Zetland, Oliver
Stanley, majór, en fulltrúar
frjálslynda flokksins verða:
markgreifinn af Reading, fyrr
vicekonungur Indlands, mark-
greifinn af Lothian (áður Pliil-
ip Kerr, í heimsstvrjaldarráðu-
neyti Lloyd George), Sir Ro-
bert Hamilton og Isaac Foot.
Flugferðirnar aukast.
Innan við þúsund manns fóru
flugleiðina milli París og Lon-
don árið 1919, en 22.346 árið
sem leið. Búist er við, að i ár
fljúgi yfir 30.000 manna milli
Parísar og London. Flugleiðin
er 225 enskar mílur og er ver-
ið hálfa þriðju klukkustund á
leiðinni. Stærstu farþega-flug-
vélarnar flytja 20 farþega. Far-
gjaldið er nú 20 dollarar, en
33 háðar leiðir. Fyrir tíu árum
kostaði farmiðinn 100 dollara
aðra leiðina. Auk breskra flug-
véla fara daglega frá Croydon-
flugstöðinni margarþýskarflug-
vélar, eign Lufthansa-félagsins.
Flytja þær farþega og vörur út
um alla Evrópu. Lufthansa hef-
ir 26 flugvélar í gangi milli
Englands og Þýskalands, þar af
4 vöruflutningaflugvélar.
Wolfgang von Gronau,
þýska flugmanninum, sem flaug
frá Þýskalandi til Bandaríkj-
anna i sumar, um ísland og
Grænland, var tekið með kost-