Rökkur - 01.03.1931, Qupperneq 38
36
ROKKUR
lendnanna hafa felt úrskurð í.
Mun ekki um það deilt á ráð-
stefnunni, að nýlendurnar hafi
rétt til að fá þessu framgengt.
En að því er Irland snertir
(fríríkið) ber þess að geta, að
samkvæmt ensk-írska samn-
ingnum er fríríkisborgurunum
veittur réttur til Privy-Council
áfrýjana, en breyting á þessum
samningi verður ekki fram-
kvæmd nema með samþykki
beggja aðila, en þá verður
óhjákvæmilegt að taka málið
fyrir á þingum beggja ríkjanua,
en bvorki írar eða Bretar eru
áfjáðir í að hefja umræður um
samninginn. eins og sakir
standa. M. a. bafa mótmælend-
ur í írlandi samþykt áskorun
þess efnis, að ekki verði hreyft
við þessu atriði samningsins.
Telja þeir réttinn til Privy
Council áfrýjana mikils virði.
Mál þau, sem kunnugt er, að
rædd hafi verið á ráðstefnunni,
eru öll að meira eða minna
leyti sjálfstæðismál, og umræð-
urnar benda til þess, að sjálf-
stjórnarnýlendurnar óska þess
að fá öll réttindi sjálfstæðra
ríkja í framtíðinni, en þótt svo
fari, mun óhætt að telja það
víst, að þær taugar, sem um
aldir hafa bundið breskar þjóð-
ir saman, muni ekki bresta af
þeim orsökum. Sá hugsunar-
háttur cflist með þjóðunum, að
helsta skilyrðið til vináttu og
samvinnu, sé gagnkvæm viður-
kenning á fullu sjálfstæði.
Hvalrannsóknir
eru Bretar að láta framkvæma
í Suðurhöfum. Snemma í nóv-
ember lagði rannsóknarskipið
William Scoresby af stað frá
London suður á bóginn. A með-
al rannsóknarmanna er C. A.
Milvvard flotalautinant, sem
hefir fengið það hlutverk að
merkja hvali næstu tvö árin, en
samtals hefir þann þegar unnið
þrjú ár að samskonar starfi,
Hvalirnir eru merktir í því
skyni að ná ýmiskonar upplýs-
ingum um háttu þeirra, með það
fyrir augum jafnframt að koma
í veg fvrir eyðileggingu hval-
veiðaiðnaðarins. Hvalirnir eru
merktir með málmplötum, sem
er skotið á þá af æfðum hvala-
skyttum. Plöturnar eru þannig
útbúnar, að þær festast svo
trygt er, ef skyttan hæfir, en
það er erfiðleikum bundið að
komast í gott færi við hvalina.
Vanalega fara þeir í kaf, er
skipið nálgast, og koma aftur
upp í nokkurri fjarlægð, en i
hvaða átt er næstum ógerlegt
að reikna út. — Skipstjóri á
William Scoresby er .1. C. Tr-
wing flolaforingi.