Rökkur - 01.03.1931, Side 82

Rökkur - 01.03.1931, Side 82
80 R O K K U R þakkandi, að mönnum hefir ekki sést yfir jíað, að það þarf hka að rækta fólkið um leið og landið er ræktað upp. Stofnun alþýðuskólanna i sveitunum er spor í rétta átt. Og vonandi ber- um við gæfu til að starfrækja j)á á þann hátt, að j>eir verði til verulegra j)jóðþrifa, verði grundvöllur öflugra menning- ar-miðstöðva, ekki eingöngu sveitanna, heldur alls landsins, því að sjálfsögðu mun það mjög fara í vöxt að kaupstaðarung- lingar fái einnig framlialds- mentun sína á stöðum eins og Laugum, Laugarvatni og vænt- anlega síðar Reykholti og fleiri stöðum. Mun þegar í Ijós kom- ið, að bæði foreldrar og ung- lingar í kaupstöðum hafa mik- inn áhuga fyrir sveitaskólamál- unum. Er það vel, að sú stefna hefir verið upp tekin, að miða að því, að dæmi engilsaxneskra þjóða, að liafa ekki skólana, nema suma sérmentunarskóla í borgunum. Stofnun sveita- skólanna á heitu stöðunum mun hafa langtum meiri þýðingu fyrir framtíð íslensks landbún- aðar, en menn alment gera sér Ijóst. III. Þótt fróðlegt sé að fylgjast með í því, sem gerist þessum málum viðvíkjandi, með öðrum þjóðum, og bendingar geti ver- ið í ýmsu, er þar gerist, ætti menn að fara varlega í að á- lykta um núverandi ástand og framtið íslensks landbúnaðar, með hliðsjón af hinni erlendu rejmslu. Það kemur liér svo margt til greina, sem yfir kann að sjást, er talað er alment urn erfiðleika bænda í stóru lönd- unum, t. d. það, að þvi er Ame- riku snertir, að það eru aðal- lega kornræktarmennirnir og baðmullar'framleiðendurnir, er hafa orðið liart úti. Bændur, sem stunda „mixed farming“, stunda kornrækt og griparækt, til mjólkur- og kjötframleiðslu o. s. frv., standa að jafnaði langtum betur að vigi. Sann- leikurinn er nefnilega sá, að enn þann dag í dag stundar mikill hluti amerískra bænda búskap eftir úreltum aðferðum, kornbændurnir plægja, lierfa, sá, og uppskera, en bera ekki nægilega á til viðhalds gæðum jarðvegsins og stundum alls ekki, af því að frjómagn mold- arinnar var til skamms tíma víðast og er enn sumstaðar svo mikið, að hægt var að rækta korn áfram ár eftir ár — og selja meiri hluta uppskerunnar, sá aftur næsta ár, án j)ess að bera á, og svo koll af kolli. En framsýnir menn vestra liafa fyrir löngu séð fyrir hvert

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.