Rökkur - 01.03.1931, Side 89

Rökkur - 01.03.1931, Side 89
R 0 K K U R 87 sagði fanginn, „en segðu mér, hve liátt ertu að grafa?“ „Við gólfflöt.“ „Hvernig kemurðu i veg fyrir, að fangavörðurinn taki eftir þvi, hvað þú hefir fyrir stafni?“ „Rúmið mitt er við vegginn á þess- um stað.“ „Hefir rúmið nokkru sinni verið fært, síðan þú varst settur í þenn- an klefa?“ „Nei.“ „Hvaðan er gengið inn í klefa þinn ?“ „Úr göngunum.“ „Og hvaðan er gengið inn i göng- in?“ „Úr fangagarðinum.“ „Æ,“ andvarpaði fanginn. „Hvað er að?“ kallaði Dantés. „Alt strit mitt og útreikningar lief- ir verið til einskis, — vegna einnar skekkju á uppdrætti þeim, sem eg gerði, — svo að munar alt að 15 fetum. Og eg hélt, að veggur- inn, sem þú ert að brjótast i gegn- Um, væri útveggur.“ „Við sjóinn?“ „Eg vonaði, að svo væri.“ „Og ef svo hefði verið?“ „Þá hefði eg varpað mér í sjóinn og synt til einhverrar eyjunnar hér í nánd,Daumeeyju eða Tibouleneyju. Og hefði eg komist ]>angað, hefði niér eigi verið hætt.“ „Hefðirðu getað synt svo langt?“ „Guð mundi hafa gefið mér krafta Hl þess. — Og nú er öll von úti.“ „Öll von úti?“ „Já. Hættu að grafa. Fyltu gatið, svo þess sjáist engin merki, hvað þú hefir haft fyrir stafni. Bíddu svo, uns eg geri þér aðvart.“ „Segðu mér að minsta kosti hver bú ert!“ „Eg er, — eg er fangi nr. 27.“ „Treystirðu mér ekki,“ hrópaði Dantés. Og honum fanst kveða við berg- mál hæðnishláturs. „Hlustaðu á mál mitt,“ hrópaði Dantés, — því hann óttaðist, að fanginn mundi ekki koma aftur. „Eg er kristinn maður. Eg sver við nafn Ivrists, að heldur léti eg líf mitt, en að láta böðla þá, sem kvelja okkur hér, komast að hinu sanna. Hættu ekki að tala við mig, ella rek eg höfuð mitt í vegginn og rota mig til dauðs. Mér er bláköld alvara. Eg get ekki lifað lengur einn og yfirgefinn. Hafðu ekki sjálfsmorð mitt á samvisku þinni.“ „Hve gamall ertu? Þú virðist vera ungur maður.“ „Eg veit ekki hve gamall eg er, því eg hefi ekki talið árin, sem eg hefi verið hér. Eg veit það eitt, að eg var réttra nítján ára, er eg var handtekinn, en það var þann 28. febrúar 1815.“ „Tæpra tuttugu og sex ára,“ sagði fanginn. „Á þeim aldri er enginn maður svikari.“ „ó, nei, nei,“ kallaði Dantés, trúðu mér, fyr léti eg lífið en að svikja þig í trygðum.“ „Það var vel, að þú mæltir svo, því mér liafði dottið annað ráð i hug — eg ætlaði ekki að skifta mér af þér. Eg trúi þér nú, aldurs þíns vegna. Eg skal koma aftur. Þú mátt búast við mér.“ „Hvenær?“ „Eg verð að vera viss um, að öllu sé óhætt. Eg skal gefa þér merki.“ „En þú mátt ekki yfirgefa mig. Annaðhvort verður þú að koma til mín eða eg til þín. Við leggjum á flótta saman. En ef við getum það ekki, þá getum við talast við — um ástvini okkar, eg um mína og þú

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.