Rökkur - 01.03.1931, Side 92

Rökkur - 01.03.1931, Side 92
90 R Ö K K U R beykiviðarskafti, er hann hafði falið innan klæða sinna. „Hvernig gastu búið þetta til?“ spurði Dantés enn meira undrandi. „Ur brotum úr rúminu minu. Og með þessu verkfæri hefir mér tek- ist að grafa göng alla leið til þín — fimtiu feta löng göng — eða vel það.“ „Fimtíu feta löng,“ hrópaði Dantés undrandi. „Talaðu ekki svona hátt, piltur minn. Það kemur oft fvrir í fang- elsinu, að leynisnápar eru settir á vörð fyrir utan klefadyr, til þess að hlera eftir samræðuxn fang anna.“ „En þeir halda, að eg sé einn hér.“ „Það gerir engan mismun.“ „Þvx segist hafa grafið fimtíu feta löng göng —?“ „Vissulega, eins og þér hlýtur að skiljast, þá tók eg skakka stefnu — vegna þess að mig skorti stærð- fræðileg tæki til útreikninga. Eg hélt, að eg væri að grafa að út- vegg, en í útreikningum minum skakkaði um tíu fet. Eg ætlaði mér að varpa mér í sjóinn, þegar mér hefði tekist að grafa mig út. Eg hefði átt að grafa í aðra átt og neðar. Erfiði mitt var alt til einskis.“ Þeir ræddu nú fr'am og aftur um möguleikana til þess að flýja, en fanginn komst að jxeirri niðurstöðu, að þeim væri öll sund lokuð. „Það er guðs vilji, að við eigum að vcra fangar áfram,“ sagði hann og varð alt i einu svo þreytulegur, að Dantési brá við. Hann leit út eins og maður, sem lengi hafði al- ið stóra og fagra von, en alt i einu hafði mist trúna á, að hún myndi rætast. Og þannig var líka ástatt fyrir fanganum. Dantés gleymdi sjálfum sér og raunum sínum og vonbrigðum á þessari stundu, hann vorkendi fanganum og honum varð hlýrra til hans með hverju andar- takinu sem leið. „Segðu mér hver þú ert,“ sagði hann loks. „Það skal ég gjarnan,“ svaraði fanginn, „ef þig langar enn til að vita það, nú, er ég get ekki orðið þér að liði í neinu.“ „Þú getur hughreyst mig, — þú virðist gæddur rniklu lxreki.“ Fang- inn brosti við, en það var þó rauna- svipur á andliti hans. „Eg er Faría ábóti,“ sagði hann, „og ég hefi verið fangi í If-höll frá árinu 1811. En þar áður hafði ég verið fangi um þriggja ára skeið í Fenestrelle-víginu. Árið 1811 var ég fluttur til Piedmont í Frakklandi. Um þetta leyti komst ég að því, að forlögin, sem virtust í öllu hlaða undir Napóleon, höfðu enn orðið honum hliðstæð. Napoleon hafði eignast son, sem í vöggunni hlaut tililinn „konungur Róma-borgar“. Því var fjarri, að ég byggist við þeirri breytingu, scm þú hefir sagt mér frá, að þessum mikla valda- manni yrði hrint af veldisstóli. Ilver er þá, meðal annara orða, við völd í Frakklandi nú? — Napóleon II. ?“ „Nei, — Lúðvík XVIII.“ „Bróðir Lúðvíks XVI.! Vegir for- sjónarinnar eru furðulegir. Hvaða huldar orsakir geta legið til þess, að sá, sem áður var svo voldugur og hátt settur, var knúinn i duftið, og að sá, sem fallinn var, hefir verið hafinn til vegs og virðingar af nýju?“ Dantés undraðist stórlega, að Ixessi maður skyldi geta gleymt sín-

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.