Rökkur - 01.03.1931, Síða 98

Rökkur - 01.03.1931, Síða 98
96 R O K K U R Rlt seml Rökkii. Icelandic Lyrics. Icelandic Lyrics (íslensk ljóS, frumkvæði og þýðingar) heitir merk bók, sem Þórhallur Bjarnar- son prentari gaf út í sumar. í bók- inni er safn valdra ljóða íslenskra frá seinni tímum, og er þannig frá útgáfunni gengiS, aS frumkvæði og þýðing er ávalt á söniu opnunni. Er það til mikils hægðarauka og skemtunar fyrir þá, sem kunnir eru báðum málunum, og ekki síst fyrir þá, sem eru að læra annaðhvort málið, því þeir geta þá spreytt sig á samanburðinum, þótt auðvitaS sé ekki um þýSingar frá orði til orðs að ræSa. Samanburðurinn getur verið gagnlegur fyrir því. Það, sem inenn reka fyrst augun i, er þeir taka sér þessa bók í hönd, er hve frágangur allur er prýðilegur. Hann er útgefanda til stórsóma og einn- ig prentsmiðjunni • (Gutenberg). Myndirnar af skáldunum er teikn- aðar af Tryggva Magnússyni list- málara, og eru þær æriS misjafnar, en sumar góðar. Hefði eg heldur kosið, að útgefandinn hefði látiö gera myndamót eftir góðum Ijós- myndum. — Þegar menn taka sér í hönd jafn prýðilega bók og þessi er, að ytri frágangi, dettur mönnum ósjálfrátt í hug, hvort innihaldið sé að sama skapi vandað. En hvað þessa bók snertir þarf enginn að vera í vafa um svarið, þvi aS til efn- isins hefir verið vel vandað. Val kvæðanna var líka falið þeim manni, sem líklega er best til þess fallinn núlifandi íslendinga, Ric- hard Beck, kennara við háskóla North Dakota rikis í Bandaríkjun- um. Vegna kunnáttu sinnar, vand- virkni og smeklivisi var honum ágætlega treystandi til þess að ann- ast útgáfu þessarar bókar. Beck prófessor er vel skáldmæltur sjálf- ur, hefir stundað ljóðagerð á ís- lensku og ensku, og mentast bæði við íslenskar og ameriskar menta- stofnanir. Hefir Beck skrifað for- mála, inngang og æfiágrip skáld- anna og skýringar. Er það alt vand- virknislega og af góðum skilningi af hen'di leyst. Bókin hefst á þýð- ingum á kvæðum Bjarna Thorareen- sen, en yngsta skáldiS, sem þýtt er eftir, er Davið frá Fagraskógi. Þýð- endurnir eru allir íslendingar eða af íslenskum ættum, nema Sir A. W. Craigie, íslandsvinurinn og mál- fræðingurinn frægi, sem hefir þýtt „Eykona hvít við dinnnblátt djúp“ eftir Steingrím. Þýðingarnar eru nokkuð misjafnar, en yfirleitt hefir þýðingavalið tekist ágætlega. Snjöll- ustu þýðendurnir eru aS mínum dómi Jakobína Johnson, Runólfur Fjeldsted og Vilhjálmur Stefánsson. Ljóðin í bókinni eru öll frá 19. og 20. öld og gefur þvi safn Kirk- connell’s ítarlegra yfirlit yfir is- lenska ljóðagerð frá þvi i fornöld og fram á vora daga en þetta safn, því að markmið Kirkconnell’s var víðtækara. En safn Beck’s er jafn þarft fyrir því; hvorugt safnið rýr- ir gildi hins. Safn Beclc’s á erindi til allra erlendra manna, sem kynn- ast vilja seinni tíma skáldum ís- lendinga, og er gagnleg eign og skemtileg öllum þeim íslendingum, sem ensku nema eða kunna ,og áhuga hafa fyrir ljóðagerð. — Út- gefandinn og safnandinn eiga báð- ir hinar bestu þakkir skilið fyrir bókina, sem er þeim til sóma að öllu leyti. Áskell.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.