Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Page 25
ARnFRÍðUR GUðMUnDSDóTTIR
30
Einn af frumkvöðlum svörtu guðfræðinnar var James Cone (1938–2018),
en bækur hans, meðal annars Black Theology and Black Power (1969), God
of the Oppressed (1975) og The Cross and the Lynching Tree (2011), hafa haft
mikil áhrif á guðfræðiumræðuna vestan hafs síðustu áratugi. Í grein sem
ber titilinn „Theology’s Great Sin. Silence in the Face of White Suprem-
acy“ og er frá árinu 2004 fer Cone hörðum orðum um afskiptaleysi hvítra
guðfræðinga af útbreiddu kynþáttamisrétti innan fræðanna.34 Hann byrjar
greinina á því að vitna í tvo merka guðfræðinga 20. aldarinnar, sem eru að
hans mati góðar fyrirmyndir fyrir aðra guðfræðinga. Annar er Þjóðverjinn
Dietrich Bonhoeffer (1906–1945), sem lét líf sitt í fangelsi hjá nasistum eftir
að hafa barist hatrammlega gegn Hitler og ofsóknum hans gegn gyðingum
í síðari heimsstyrjöldinni. Hinn er Martin Luther king Jr. (1929–1968) sem
leiddi ofbeldislausa baráttu gegn kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum um og
upp úr miðri síðustu öld. Cone bendir á þá staðreynd að báðir létu þessir
menn lífið fyrir málstaðinn, aðeins 39 ára gamlir. „við þurfum fleiri guð-
fræðinga eins og Bonhoeffer og king“, segir Cone, „sem hafa kjark til að
tala gegn óréttlætinu, sérstaklega þeirri illsku sem stafar af hvítri forrétt-
indahyggju“.35 Það sem er einkum áhugavert í greininni er að sjá hvernig
Cone notar syndahugtakið til að koma boðskap sínum á framfæri en að hans
mati er hvít forréttindahyggja (e. white supremacy) guðfræðilegt vandamál
og stærsta þjóðfélagsmeinið í bandarísku samfélagi. Hann kallar kynþátta-
hyggju (e. racism) „erfðasynd Ameríku“ en hann telur hana rækilega ofna inn
í stofnanir á öllum stigum samfélagsins. Cone talar líka um „synd þagnar-
innar“ sem hann hafi sakað hvíta guðfræðinga um þegar hann hóf að skrifa
um kynþáttahyggju, en þeir ekki látið sér segjast.36 Það er mikilvægt að taka
það fram að með því að tala um kynþáttamisrétti sem synd er Cone ekki að
lýsa því yfir að þau sem verða fyrir misréttinu séu laus við synd. Hann varar
þvert á móti við því að gengið sé út frá því að Guð taki sér stöðu með þeim
kúguðu vegna syndleysis þeirra. Ástæðan fyrir því að Guð sýni samstöðu
með þolendum kúgunarinnar sé öllu heldur vanmátturinn andspænis kúgun
þeirra sem með valdið fara.37
lögreglunnar gegn svörtu fólki sýna glögglega hve kynjamisréttið er enn útbreitt.
34 James Cone, „Theology’s Great Sin. Silence in the Face of White Supremacy“,
Black Theology. An International Journal 2: 2/2004, bls. 139–152.
35 Sama rit, bls. 140. Textinn er svona á frummálinu: „We need more theologians
like Bonhoeffer and king-more scholars in religion with the courage to speak out
against wrong, especially the evil of White supremacy.“
36 Sama rit, bls. 142.
37 Sama rit, bls. 145.