Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Síða 84
Hjalti Hugason
„Ó synd, ó syndin arga, [...]“1
Birtingarmynd syndarinnar í Passíusálmunum
Veruleiki syndarinnar er tvíbentur í samtímanum. Orðið hefur í grundvall-
aratriðum misst merkingu sína í mæltu máli, smættast og orðið ópersónu-
legt. Algengast er að það merki nú aðeins „skaði“ eða „leiðindi“.2 Fyrrum
var torvelt að rjúfa syndina úr tengslum við hugsanir, orð eða gjörðir ákveð-
innar persónu. Þá var merking hennar einnig þrungin dauðans alvöru. Nú
ekki síður en þá könnumst við þó flest við þann veruleika sem orðið vísaði
til: Mistök í samskiptum ef ekki meðvitaðar yfirtroðslur sem valda okkur
nagandi tilfinningu fyrir að hafa ekki reynst eins og við hefðum viljað. Slík
breytni kallaðist áður „synd“ en óbragðið á eftir „iðrun“. Í seinni tíð hafa
guðfræðingar freistað þess að endurheimta hugtökin og heimfæra til dæmis
upp á þann veruleika sem mannkyn glímir nú við, loftslagsvá af manna-
völdum með óhjákvæmilegum félagslegum afleiðingum sem meðal annars
blasa við í vaxandi fólksflutningum.3 Líta sumir guðfræðingar á þetta sem
afleiðingar af synd mannkyns gagnvart móður Jörð og skapara hennar, Guði.
1 Passíusálmur (eftirleiðis Ps) 25:8. Hér og annars staðar er vísað til Passíusálmanna
samkvæmt lestextanum í Hallgrímur Pétursson, Passíusálmar, Reykjavík: Lands-
bókasafn Íslands – Háskólabókasafn, 1996, hér bls. 122. Þar er eiginhandarrit Hall-
gríms (JS 337 4to) birt ásamt stafréttum texta og lestexta.
2 Þessi inngangsorð eru rituð 14. febrúar 2020 sem er mikill óveðursdagur með app-
elsínugulum og rauðum viðvörunum frá Veðurstofu Íslands um allt land. Í dag hefur
líklega margur sagt: „Það er synd að það skuli vera svona slæmt veður. Ég sem ætlaði
einmitt að […].“
3 Íslensk dæmi sjá Hjalti Hugason, „Þjóðarsálin í kjölfar fjármálahruns. Hrunið 2008
frá sjónarhóli guðfræðinnar“, Tímarit Máls og menningar 74: 4/2013, bls. 49–63.
Arnfríður Guðmundsdóttir, „Siðbót 21. aldar. Guðfræðileg viðbrögð við aðsteðj-
andi umhverfisvanda“, Ritröð Guðfræðistofnunar 2018, bls. 3–14, sótt 21. febrúar
2020 af https://ojs.hi.is/ritrodgudfraedistofnunar/article/view/2782/1552.
Ritið
3. tbl. 20. árg. 2020 (89-118)
Ritrýnd grein
© 2020 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundur greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI: 10.33112/ritid.20.3.5
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).