Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Page 125
GuðRÚn BJöRK GuðSTeInSDóTTIR
130
skyndilega meðfram sporum Garðars síðasta spottann niður að sjó og Katrín
er sannfærð um að þar sé Hauk einnig að finna.
Meðferð Bernódusar á Katrínu og Líf er af allt öðrum toga spunnin,
byggð á siðferðislegu mati og aðgerðum til að tryggja annars vegar að bein
þeirra Benna komist í vígða mold, en hins vegar að einstaklingur við hæfi
taki við gæslu æskuheimilisins. Af öllum hugsunum Katrínar má ráða að
hana prýði dygðirnar sjö sem hafðar eru að leiðarljósi í kaþólskum sið: viska,
hugrekki, hófstilling, réttlæti, trú, von og kærleikur.34 Að auki prýða hana
nútímadyggðirnar sjö sem kom í ljós að Íslendingar mátu mest í könnun
Gallups árið 1999. Heiðarleiki var hæst metinn af flestum aldamótaárið en
þar á eftir kom hreinskilni, jákvæðni, traust, dugnaður, sterk fjölskyldu- og
vináttubönd, og heilsa.35 Þessir eiginleikar koma í ljós í atburðarásinni þegar
Katrín kemur fram við Líf af ósérhlífni, umhyggju og nærgætni þrátt fyrir að
vinkonan komi sér mest undan allri vinnu og væli óspart um þau lífsins gæði
sem hún saknar á einangruðu eyðibýlinu.
Það er siðatröllið Katrín sem Bernódus velur sem verðugan eftirmann sinn
til að gæta æskuheimilisins eins og haugbúi og hann verndar hana markvisst
þar til annað hentar. Hann bjargar lífi Katrínar þegar Garðar og Líf reyna að
drepa hana í verksmiðjurústum við Hesteyri; hún hörfar undan steinvegg sem
þau steypa á hana þegar hann birtist henni og öskrar þögult. Að sama skapi má
ætla að Bernódus hafi komið í veg fyrir dauða Katrínar þegar Líf hrinti henni
niður brattan stigann. Hann velur henni dauðastund þegar hún hefur rifið
burt parketið sem huldi hlerann yfir skriðkjallaranum og opnað. Þá er öruggt
að líkamsleifar hans finnist þegar farið verður að leita að Garðari og Katrínu.
Bernódus tryllir Katrínu áður en hann gengur af henni dauðri. Vald
hans á rafmagni og raftækjum kemur víða í ljós, eins og þegar hann tæmir
símahleðslur nýrra eigenda svo þeir geti ekki hringt eftir hjálp. Katrín upp-
götvar nöturlegan sannleikann um líf sitt og vélráðin sem hún hefur verið
beitt þegar hún tekur myndir niður í skriðkjallarann á myndavél Lífar og sér
þannig leifarnar af Bernódusi, en smellir svo óvart í ranga átt. Þannig birtast
elstu myndirnar, sem sýna Líf og Garðar nakin á hótelherbergi. Líf gengst
beint og óbeint við framhjáhaldinu og áformum þeirra Garðars um að drepa
Katrínu í ferðinni og hagnast þannig af líftryggingu hennar, eins og eigin-
mannsins, sem Líf sá ein um að drepa til að hefna sín fyrir framhjáhald hans
og tryggja sér óskipt auðævi hans.
34 Þórunn Valdimarsdóttir, „Dyggðirnar sjö“, bls. 18. Þórunn telur mikilvægi heiðar-
leikans eiga dýpstar, óslitnar rætur í íslenskri menningu, allt aftur til heiðni, bls. 17.
35 Þórunn Valdimarsdóttir, „Dyggðirnar sjö“, bls. 18.