Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Blaðsíða 126
SYNDAUPPGJÖR Í SKÁLDSÖGUNNI ÉG MAN ÞIG ...
131
Katrínu finnst hún vera stödd á ótryggum barmi hyldýpis við hlið sið-
leysingja þegar ljóst er að allt hennar líf með Garðari og vináttan við Líf
byggðist á lygi og svikum; hún deyr því öllum heillum horfin, tryllt af hugar-
angri eins og Bernódus á sínum tíma. Hún finnur jökulkaldar barnshendur
ljúkast um háls sér en næsta vitund hennar er standandi á fjörukambinum.
Reiðin kraumar ennþá í henni eftir andlátið þegar hún gengur sjóblaut og
eins og vönkuð úr sinni votu gröf að „húsinu, húsinu hennar“: „Hún var
komin heim og ekkert myndi raska ró hennar framar. Hún skyldi sjá til þess“
(317). Bein hennar, sjódauðrar, komast líklega aldrei í vígða mold og því er
líklegt að hún muni verja sitt hús – sinn haug – til frambúðar.
Líf er andstæða Katrínar því flestar af kristnu dauðasyndunum sjö má
finna hjá henni.36 Hún stjórnast af ágirnd og losta, sækist eftir munúð og
óhófi. Hroki og reiði brýst fram þegar einar heldur framhjá henni og hún
telur morð sitt á honum vera réttláta hefnd. Þessi orð Þórunnar Valdimars-
dóttur má þó heimfæra á Líf: „Hinum hvíldarlausu illu, sem iðka dyggðir
illa, líður sumum ekkert síður en þeim dyggðugu, þeir eru samviskulausir
eða láta fornar syndir ekkert bögga sig“.37
ef nútímadyggðirnar eiga sér andhverfur eins og dauðasyndirnar sjö þá
sameinast þær einnig allar í Lífi. Hún er ekki dugleg heldur vinnur verkin illa
eða kemur sér hjá þeim. Hana skortir jákvæðni því hún kvartar og kveinar
yfir mat og aðbúnaði á eyðibýlinu sem hún sjálf vildi ólm komast til. Henni
er ekki treystandi og vináttu virðir hún ekki, en kemur sér áfram með lygum
og svikum. Hún er virk í ræktinni en annars eru reykingar í meiri forgangi
en heilsan, og sígaretta er hennar hinsta ósk. Fagurt andlit hennar dylur
syndirnar en Bernódus gerir þær verstu sýnilegar. Hann ristir djúpan kross í
hvora kinn hennar, einn fyrir hvort líf sem hún batt enda á þegar hún táldró
Frey og stal insúlíni ætlað Benna til að drepa manninn sinn. Líf stjórnast
semsagt af sérplægni og græðgi og finnst ekki tiltökumál að aðrir láti lífið til
að auðga hennar, enda skilgreind sem siðblind.
Á mikilvægan hátt er Bernódus er írónísk andstæða Lífar og Pjeturs
föður síns. Hvorugt þeirra tekur ábyrgð á eigin gjörðum, en réttlæta þess
í stað eigin ómennsku, Þrátt fyrir að Bernódus sé ómennskur tekur hann
Benna aftur á móti sem verndandi og kærleiksríkur bróðir eða faðir. Dauði
36 „Seven Deadly Sins“, Encyclopaedia Britannica, sótt 6. okt. 2020 af https://www.
britannica.com/topic/seven-deadly-sins. Father James Shafer, „understanding the
Seven Deadly Sins“, Simply Catholic, sótt 7. des. 2020 af https://www.simplycatholic.
com/understanding-the-7-deadly-sins/.
37 Þórunn Valdimarsdóttir, „Dyggðirnar sjö“, bls. 18.