Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Blaðsíða 150
„ÉG HeYRI ÞAð Sem ÞÚ SeGIR“
149
girni/svindl, á meðan hægra fólk noti alla fimm liðina. mögulega sé það
vegna þess að fólk sem er hægrisinnað hafi víðtækara viðhorf til siðferðis og
taki líka á málefnum eins og hollustu, yfirráðum og helgidómi. Því sé auð-
veldara fyrir stjórnmálamenn sem eru með breitt svið að ná til kjósenda á
fjölbreytilegri hátt.
Af þessu má líklega álykta að auðveldara sé fyrir repúblikana að ná til
kjósenda sinna eftir alls kyns leiðum heldur en demókrata en Haidt telur
auk þess að repúblikanar í Bandaríkjunum skilji siðferðilega sálfræði en
demókratar ekki. Slagorð repúblikana, auglýsingar og ræður tali „beint til
hjartans“ (e. gut) á meðan það sem einkenni demókrata sé að ræða ákveðna
pólítík og þann ávinning sem þeir muni færa kjósendum. Haidt hefur af
þessum ástæðum gagnrýnt demókrata fyrir „sálfræðilega einfeldni“.67
Af ofangreindu ætti að vera ljóst að siðferðileg afstaða hefur mikil áhrif
á hópamyndanir því þeir eiga það sameiginlegt að telja sig fulltrúa siðferðis
þótt þeir fari ólíkar leiðir í því að tjá það eða ná því fram. Samlíðan er byggð
á siðferðilegu mati okkar og er hlutdræg. Hún birtist í því að hópar sem
eining geta fundið til með öðrum en einnig fundið fyrir hatri, skömm og
lagt í einelti. Þeir geta þó einnig fundið til þeirrar þarfar að refsa og smána,
en báðar hvatir eiga rætur í samlíðaninni, rétt eins og viðbjóðstilfinningin
sem rís upp þegar brotið er á ákveðnum grunngildum sem hópurinn hefur í
heiðri. Tilgangurinn er fyrst og síðast sá að halda uppi réttu siðferði og góðu
samfélagi sem byggi á réttlæti og heiðarleika.
Klaustursmálið og hópar sem smána
en er hægt að nefna einhver íslensk dæmi sem draga skýrt fram ýmis af
þeim meginlögmálum sem stýra siðferðisdómum samtímans, þeim sem rísa
úr samlíðan ákveðinna hópa?
Hljóðupptökurnar sem náðust af einkasamtali alþingismanna miðflokks-
ins og Flokks fólksins á Klaustri bar í Reykjavík 20. nóvember 2018 vöktu
mikla ólgu í samfélaginu og þóttu sýna kvenfyrirlitningu, fordóma gegn
fötluðum og misferli í ráðningu sendiherra, eins og heyra mátti í samtali
þingmannanna.68 Klaustursmálið svokallaða sýnir glöggt siðferðis- og rétt-
lætiskenndina sem stýrir viðbrögðum fólks sem misbýður eitthvað, þörfina á
67 Sama heimild, loc. 216. Sjá einnig umræðu mína um George Lakoff í neðanmáls-
grein nr. 36.
68 Samtalið var hljóðritað af öðrum bargesti, Báru Halldórsdóttur, sem sat á nálægu
borði og sendi upptökurnar á fjölmiðlana Stundina og DV.