Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Blaðsíða 148
„ÉG HeYRI ÞAð Sem ÞÚ SeGIR“
147
lifi af. en mannlegt eðli mótaðist einnig af því hvernig hópar keppa við aðra
hópa. Hér er verið að styðjast við þá kenningu Darwins sem aftur hefur
hlotið brautargengi á síðustu árum að þeir hópar sem séu samheldnir og
vinni náið saman séu hæfari til að lifa af en hópar sem settir séu saman af
sjálfselskum einstaklingshyggjumönnum.62
Félagssálfræðingurinn Jonathan Haidt segir í bók sinni The Righteous
Mind. Why Good People are Divided by Politics and Religion að siðferðileg rök-
hyggja sé eiginleiki sem maðurinn hafi þróað til þess að styrkja félagsleg mark-
mið sín, til þess að réttlæta gjörðir sínar og til þess að verja hópinn sem hann
tilheyrir.63 Siðfræði snúist ekki bara um skaða og sanngirni heldur einnig um
frelsi, hollustu, vald og heilagleika. Siðferði bindur okkur því í senn saman
og blindar okkur. Fræg setning mark Twain, „allt lítur út eins og nagli fyrir
mann sem heldur á hamri“ kjarnar hugsunina um siðferði sem blindar, um
hlutdrægnina sem býr í dómum okkar. Haidt leggur áherslu á hversu fljót við
séum að mynda okkur skoðanir og taka okkur siðferðilega stöðu, það sé þó
byggt á innsæi fremur en rökhugsun.64 Það sem skipti máli þegar kemur að
stjórnmálaskoðunum fólks sé að þær séu einkennismerki um þann félagslega
hóp sem við tilheyrum. Hópurinn okkar skiptir okkur miklu máli, hvort sem
um er að ræða þann sem við tilheyrum út frá kynþætti, svæði, trúarbrögðum
eða pólitík. Pólitískar og siðferðilegar skoðanir leiði til hópamyndunar.
Haidt segir að siðferðileiki samfélaga byggi á þeirri hugmynd að fólk
62 Darwin segir í The Descent of Man að ekki megi gleyma því að hár siðferðlegur
mælikvarði gefi hinum einstaka manni og börnum hans enga eða næstum enga
yfirburði ef bera á þau saman við aðra einstaklinga í sömu hjörð. en almennar
framfarir í siðferðilegum mælikvörðum og umtalsverð fjölgun á vel gerðum (e.
well- endowed) einstaklingum innan hjarðarinnar gefa henni mikla yfirburði fram yfir
aðra hópa. ekki leikur vafi á að hjörð sem inniheldur meðlimi sem hafa til að bera
ættjarðarást, hollustu, hugrekki og samúð, sem eru alltaf reiðbúnir til að hjálpa og
fórna sér fyrir almenningsheill, hefur vinninginn yfir flestar aðrar hjarðir. Sjá Charl-
es Darwin, The Descent of Man, and Selection in Relation to Sex, Princeton/New Jersey:
Princeton University Press, 1981, bls. 166.
63 Jonathan Haidt, The Righteous Mind. Why Good People are Divided by Politics and Reli-
gion, New York: Pantheon Books, 2012, epub, loc. 16. Í grein sinni „When morality
Opposes Justice“ ræða Haidt og Graham um skilgreiningar á siðferði í tengslum við
hægri og vinstri stjórnmál. Þeir benda á að viðhorf íhaldsmanna til félagslegs rétt-
lætis virðist vera ósiðleg og hafi verið útskýrð sem réttlætingakerfi eða félagsleg yfir-
ráð. Þeir færa rök fyrir því að svæði siðferðilegra hugsjóna sé miklu víðara og greina
fimm grundvallaratriði er varða siðferðiskennd okkar. Sjá Jonathan Haidt og Jesse
Graham, „When morality Opposes Justice. Conservatives Have moral Intuitions
that Liberals may not Recognize“, Social Justice Research 20: 1/2007, bls. 98–116,
hér bls. 98.
64 Jonathan Haidt, The Righteous Mind, loc. 77.