Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Page 97
RAnnVEIG SVERRISDóTTIR OG KRISTÍn LEnA ÞORVALDSDóTTIR
96
kynningarefni séu á ÍTM.102 Sá sýnileiki sem með þessum aðgerðum fæst
getur hjálpað til við að ÍTM öðlist betri sess í samfélaginu, sé sýnilegra og
njóti meiri virðingar. Í aðgerðaáætlun er einnig mikil áhersla á upplýsinga-
gjöf og fræðslu, bæði til forráðamanna103 táknmálsbarna og táknmálsfólks
en einnig til sérfræðinga í nærþjónustu við börn og samfélagsins í heild.104
Með fræðslu má ætla að auka megi vitund um málið í samfélaginu öllu því
útbreiðsla þekkingar er öflugt tól í baráttunni gegn ranghugmyndum og for-
dómum og þar með neikvæðum viðhorfum. Einnig gæti aukin vitund unnið
gegn þeirri skoðun að táknmál eigi að færa nær formgerð nágrannaradd-
mála eða að þau séu óþörf og að eðlilegt þyki að svipta börn rétti sínum til
að læra þau. Því er sú aðgerð að fræðsla um ÍTM og sögu og menningu þess
verði hluti af námsefni grunnskólabarna105 ekki síður mikilvæg fyrir málið
og málsamfélagið allt en að fræða þá sem eiga rétt á að læra ÍTM samkvæmt
lögum.106
Sú staðreynd að langstærsti hluti forráðamanna táknmálsbarna kann ekki
táknmál þegar börnin fæðast, gerir það að verkum að foreldrum er ætlað
stórt verkefni. Þá skiptir miklu máli að þeir hafi bæði aðgengi að málanámi
og réttmætum upplýsingum. Því er brýn ástæða fyrir því að auka þurfi upp-
lýsingagjöf til forráðamanna bæði með faglegri ráðgjöf og fræðslu því aðeins
þannig geta þeir tileinkað sér ÍTM nógu snemma á máltökuskeiði barnsins
og tileinkað sér jákvæð viðhorf til ÍTM sem er fyrsta mál táknmálsbarnsins
eða annað tveggja (eða fleiri) mála þess. Þá geta viðhorf forráðamanna til
ÍTM skipt sköpum fyrir möguleika táknmálsbarna til að njóta lögbundinna
réttinda sinna til þess að tileinka sér ÍTM. Forráðamenn táknmálsbarna geta
einnig verið táknmálsfólk og fræðsla til þeirra skiptir einnig máli þar sem, í
ljósi menntunarsögu táknmálsfólks, þekking á máluppeldi og máltöku tákn-
mála hefur ekki verið mikil.
Í aðgerðaáætlun er sú krafa sett á Félag heyrnarlausra, Málnefnd um
ÍTM, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og Háskóla Ís-
lands að standa fyrir viðburðum þar sem náttúrulegt málumhverfi er í for-
grunni.107 Tilgangurinn með þessum viðburðum getur verið tvíþættur, að
fólki gefist tækifæri á að tala málið sitt og beita á ýmsum notkunarsviðum
102 A1.
103 Í MÍTM er talað um foreldra en verið er að vísa til forráðamanna barnanna.
104 A2, A3, A5.
105 A5.
106 A2, A3. Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011.
107 A4.