Úrval - 01.02.1944, Side 14
12
ÚRVAL
herberginu. — Maðurinn, eða
mennirnir, höfðu viðstöðulítið
komizt inn í herbergið, gripið
barnið úr rúmi sínu, og horfið
á brott með það.
En ekki hafði þeim tekizt
þetta, án þess að eftir þá sæ-
ust nokkur verksummerki. Á
gólfinu í herberginu og í möl-
inni undir glugganum, voru
spor eftir auruga fætur, en af
því, að mennirnir höfðu annað
hvort verið í hlífðarsokkum
eða „mokkasínum“ varð ekkert
af þessum sporum ráðið til upp-
lýsingar. Skilinn hafði verið
eftir á dragkistu í herberginu,
bréfsnepill, stílaður til Lind-
bergs ofursta. I fréttunum um
atburð þennan, var lengi vel
ekkert getið um þetta bréf, eða
innihald þess, og verður síðar
að því vikið, hver ástæðan var
til þess. Skammt frá húsinu,
fannst meitill, og stiginn fannst
í skógarjaðrinum, hérumbil 20
metra frá húsinu.
Til þessa barnaráns höfðu
þorpararnir valið kvöld, sem
vitað var, að Lindberg myndi
verða í opinberri viðhafnar-
veizlu í New York. En það
vildi nú svo til, að ruglast
höfðu hjá honum dagar, svo
að hann var heima. Annað fólk,
sem heima var í húsinu þetta
kvöld, voru: barnfóstran Betty
Gow, brytinn og kona hans.
Það er eins og að djöfulleg
heppni væri með þorpurunum,
því að enginn þeirra, sem í
húsinu voru, varð þeirra var,
eða heyrði til þeirra. Hundur
var og á heimilinu, en hann
virtist ekki hafa orðið þorpar-
anna var, fremur en fólkið.
Þegar Betty kom inn í her-
bergið kl. 10, og sá að barnið
var horfið, rak hún upp óp,
sem Lindberg heyrði, og kom
hann á harða hlaupum upp á
loftið. Hann brá þegar við og
hringdi upp lögreglustöðina í
Hopewell. Fulltrúinn, sem á
verði var, ók þegar allt hvað af
tók heim til Lindbergs, en gerði
þó fyrst ráðstafanir til þess, að
símað yrði um ránið til lögreglu-
stöðva um þver og endilöng
Bandaríkin. Brást lögreglan vel
við og var þegar hafizt handa
um skipulega leit að ránsmönn-
unum. En þeir höfðu haft heila
klukkustund til að forða sér.
Og á þeim tíma gátu þeir ver-
ið búnir að koma sér vel fyrir
einhvers staðar í undirheimum
New York borgar. Geta má því
nærri, að mikill harmur og
skelfing greip þau Lindbergs-