Úrval - 01.02.1944, Side 96
„Það er ekki nóg' að framleiða stál í verksmiðju.“
Maðurinn í glerhúsinu.
Grein úr „The American Magazine",
eftir David Grayson.
CÁTT er skemmtilegra en að
1 leita skilnings á eðli þeirra
hluta og fyrirbæra, sem mæta
okkur í daglegu lífi. Ég hefi
skemmt mér við þessa iðju í
mörg ár hér í dreifbýhnu, þar
sem mjög er auðvelt að iðka
hana. En í borgum . . .
Ég ætla að segja ykkur frá
undarlegri reynslu, sem ég varð
fyrir, þegar ég hafði verið
nokkra mánuði í borginni . . .
1 fyrstu hafði ég yndi af ao
virða fyrir mér fólkið, sem ég
sá þar, og gaf ég mig oft á tal
við það á götuhornum eða á
kaffistofum; en brátt fóru hinir
háu og kuldalegu verksmiðju-
múrar að hafa undarlega seið-
mögnuð áhrif á mig. Einkum
var það ein verksmiðja með há-
um reykháfum . . .
Dag nokkurn fór ég að hitta
kunningja minn, John Pitwell
að nafni, sem gæddur er beztu
eiginleikum gamallar borgar-
menningar. Hann þekkti ekki
aðeins verksmiðjuna, heldur var
hann forstjóri félagsins, sem
átti hana. Hann sagði mér, að
þeir hefðu nýlega átt í harðvít-
ugu verkfalli, og hann gaf mér
pappírsmiða, sem hann sagði að
myndi opna mér leið inn fyrir
hliðið.
Það fór eins og hann spáði,,
og strax næsta kvöld hitti ég
manninn í glerhúsinu. Hann
hét John Doney. „Yður langar
til að sjá hvernig hún vinnur ?“
spurði hann.
„Já,“ sagði ég, „mjög mikið.
Ég er ofan úr sveit, og þetta
er allt svo undursamlegt í mín-
um augum.“
Ég fór með honum upp járn-
stigann, upp í búrið hans, þar
sem hann leysti félaga sinn af
hólmi, og ég settist á stól
skammt frá honum. Séð frá
þessum stað voru hin skrölt-
andi vélabákn í dauflýstum
salnum enn uggvænlegri.
John Doney skýrði fyrir mér