Úrval - 01.02.1947, Qupperneq 47
ÞARFASTI ÞJÓNN" INDLANDS
45
ranann og tók á rás í áttina til
mannsins. Verkstjórinn lyfti
rifflinum og hlóð hann með
íveim stórum nikkelkúlum.
Það var varasamt að skjóta
of fljótt, því að fílsheilinn er
lítið skotmark, en einungis
heilaskot getur stöðvað óðan
fíl. Það veldur auknum erfið-
Jeikum, hve fíllinn ber hausinn
hátt og svo liitt, að hann vefur
ranann upp í einskonar linykil.
Píllinn geystist áfram og
jörðin skalf. Þegar hann var í
50 metra fjarlægð, skaut verk-
stjórinn úr öðru hlaupinu, en án
árangurs að því er virtist; síð-
ara skotinu skaut hann, er fíll-
Inn var 20 metra í burtu. Fíll-
inn steyptist um koll og víg-
tennurnar grófust niður í jörð-
ína, einu eða tveim fetum frá
manninum.
Fílar hafa fremur daufa sjón
og heym, og lélegt lyktarskyn,
ef miðað er vio önnur frurn-
skógardýr, en þeir þurfa ekki
að óttast neitt, nema ef tígris-
dýr kann að ráðast á ungfíl ein-
staka sinnum.
Eitt sinn söknuðum við ungs
tannfíls og var talið, að hann
hefði lagzt út með viliifílum.
kjokkrum dögum síðar sagði
Burmabúi einn, sem vann hjá
okkur, mér frá því, að villt fíla-
hjörð væri svo sem mílu vegar
í burtu, og stakk upp á því, að
við færum og aðgættum, hvort
okkar fíll væri meðal þeirra.
Ég kom mér fyrir í klettaskoru
í lækjarfarvegi og hafði riffil-
inn við höndina, ef eitthvað
kæmi fyrir. Ég heyrði að fílarn-
ir voru á næstu grösum. Burma-
búinn læddist að hjörðinni og
tók að athuga fílana. Þeir voru
26 talsins, og hann varð að
skoða lendar þeirra, til þess að
gæta að brennimarki okkar. Að
síðustu rak hann alla hjörðina
framhjá felustað mínum. Þeir
þrömmuðu framhjá, sumir ekki
nema tíu fet frá mér, en enginn
þeirra varð mín var.
Hóphvötin er svo sterk meðal
fílanna, að eitt sinn olli hún
eyðileggingu á járnbrautar-
stöð í Burma. Þýzkt dýrakaup-
mannafélag hafði keypt ungan
fíl af okkur. Fíllinn var settur í
járnbrautarvagn og vagninn
færður á hliðarspor yfir nóttina.
Fíllinn ungi, sem var óvanur
slíkri meðferð, tók að öskra af
öllum mætti. Fílar í nágrenninu
gengu á hljóðið, réðust á vagn-
inn og leystu fílinn úr prísund-
inni. Síðan réðust þeir á stöðv-
arbygginguna.