Úrval - 01.06.1948, Síða 71
ÓLYMPlULEIKARNIR TIL FORNA
69
menn næsta lítið um vettvang
þessara atburða, en með forn-
ieifagrefti, sem byrjað var á
fyrir síðustu aldamót, hafa
menn orðið margs fróðari um
gang leikanna. Auk þess höfðu
Grikkir þann sið að gera líkn-
eski af sigurvegurunum. þess-
vegna vitum við allnákvæmi-
lega, hvernig íþróttafólk þeirra
tíma leit út.
Hverjir voru þátttakendur í
þessum Ólympíuleikum ? Þetta
ver grísk þjóðhátíð, í stað þess
að nú eru Ólympíuleikarnir
alþjóðleg íþróttakeppni.
Orðið „demokrati“ (lýðræði)
er grískt, en Ólympíuleikarnir
eru gott dæmi um það, að ekki
hefur alltaf verið lögð sama
merking í það orð. Aðgangur-
inn að Ólympíuleikunum var
lýðræðislega heimill öllum
frjálsum mönnum. En í því fólst
einmitt sú takmörkun, að þræl-
arnir gátu ekki verið þátttak-
endur. En það var álitið sjálf-
sagt fyrirkomulag, því að þræl-
arnir voru ekki taldir grískír
borgarar. Auk þess var sú
óbeina takmörkun, að þátt-
takan hafði í för með sér
mikinn kostnað, sem allir höfðu
ekki efni á að greiða. Loks var
mikill hluti þjóðarinnar útilok-
aður með því ákvæði, að konur
hefðu ekki aðgang að hátíðar-
svæðinu á helgum tíðum. Það
tóku engar sundmeyjar þátt í
hinum fornu Ölympíuleikum.
Við vitum af eigin reynslu,
að fresta verður Ólympíuleik-
unum þegar styrjaldir geisa.
Þeir sem fullorðnir eru muna,
að 1916 var leikunum í Berlín
aflýst, og ekki voru haldnir
neinir leikar 1940 og 1944.
Fyrir tvö þúsund árum var
þetta öðruvísi. Þá var styrjöld-
um aflýst á meðan leikarnár
fóru fram. Þegar leið að því að
leikarnir skyldu hefjast, urðu
hinir grísku þjóðflokkar að
leggja niður innbyrðis skærur
þangað til þeir voru afstaðnir.
Auðvitað var þetta ekki alltaf
hægt, því að fyrir kom, að inn í
landið réðust útlendir þjóð-
flokkar, sem tóku ekki tillit til
þessarar grísku giðvenju. En
leikarnir voru haldnir eigi að
síður, og jafnvel þó að óvinirnir
væru við landamærin, var
keppnin haldin samkvæmt á-
ætlun. Á meðan 300 Grikkir
vörðu Laufaskarð, sem löngu er
frægt orðið, voru landar þeirra
í þúsundatali samankomnir á
hinni ólympsku hátíð.
íþróttamenn mun fýsa að vita