Úrval - 01.06.1948, Síða 131
Fróðleiksmolar.
Framhald af 4. kápusíðu.
arhreistri. • Framleiðslan á nátt-
úrugúmmíi var meiri en á gervi-
gúmmíi árið 1947 í fyrsta skipti
síðan 1943. • Annan janúar síð-
astliðinn var jörðin 6 500 000 km.
nær sólinni en hún var 5. júlí 1947,
en þá var hún 152 000 000 km. frá
sólu. • Það þarf fimm lestir af
kolum til að framleiða eina lest
af stáli. • 1 Bandarikjunum voru
um síðustu áramót starfandi 961
flugvél við farþega- og vöruflutn-
inga; þar af voru 168 í millilanda-
ferðum. (Þetta svarar til þess, að
Islendingar ættu eina flugvél). •
Hveiti var helmingurinn af öllum
matvælaútflutningi Bandaríkj-
anna árið 1946. • Ritblý i blý-
öntum er grafít blandað leir og
fer harka þess eftir því hve mikl-
um leir er blandað saman við graf-
itið. • Hitinn i stálbræðsluofni
er um 1930 gráður á Celsius. •
Nautin eru almennt talin hættu-
legust allra húsdýra, en samt eru
slys tíðari af völdum hesta. •
Tekizt hefur að framleiða „ethyl
aleohol" (spiritus) úr mysu. • Ef
sápa er borin á botninn á potti
áður en hann er settur yfir prím-
us eða olíuvél, er mjög auðvelt
að ná sótinu af á eftir. • Rjómaís-
framleiðslan I Bandaríkjunum
nam 21 lítra á mann árið 1946.
• Te- og kaffiblettum má ná af
postulíni með blautu natroni. •
Eikartré eitt í Jacksonville i Flór-
ída er svo stórt og laufmikið, að
talið er að 4000 manns geti stað-
ið í skugga þess um hádegið. ®
Vötnin miklu á landamærum Kan-
ada og Bandaríkjanna, sem eru
247 þúsund ferkm. að stærð, eru
aldrei alveg ísilögð á veturna, en
mikill ís er við strendur þeirra,
stundum nokkrar mílur út frá
landi. • 1 eina silkisokka getur
þurft allt að 80 km. langan þráð.
• 1 vindlaösku er kalk, kalí og
örlítið af fosfór, mangan, mag-
nesíum og öðrum dýrmætum nær-
ingarefnum fyrir plöntur. Hún er
því ágætur áburður að öðru leyti
en því, að í hana vantar köfn-
unarefni. • Eiturgas, sem fram-
leitt var í Ástraliu á stríðsárun-
um, er nú notað til að útrýma
kanínum, en þær eru mikil plága
þar. • Frá því að húsflugan verp-
ir og þangað til eggið er orðið
að fullvaxta flugu, líða 12 til 14
dagar. • Kínverski múrinn er
stórkostlegasta verk, sem gert
hefur verið af mannahöndum.
Stjömufræðingar segja, að hann
sé sennilega eina mannvirkið á
jörðinni, sem sýnilegt væri ber-
um augum frá tunglinu. Hann
er 4000 km langur, en ef efnið
úr honum væri lagt í vegg, sem
fylgdi miðjarðarlínunni og væri
einn metri á breidd og tveir og
hálfur metri á hæð, mundi hann
ná umhverfis jörðina.